OR kaupir Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar fyrir 150 milljónir Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. janúar 2010 16:08 Orkuveita Reykjavíkur. Mynd/ Auðunn
Samkomulag hefur tekist á milli Orkuveitu Reykjavíkur og fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkisins, um kaup Orkuveitunnar á 20% hlut ríkisins í Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Á næstu vikum verður rekstur hitaveitunnar sameinaður öðrum veiturekstri Orkuveitunnar. Kaupverðið nam 150 milljónum króna og auk eignarhlutar ríkisins fylgir með í kaupunum nýtingarréttur af Deildartunguhver til 55 ára. Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar var stofnuð árið 1979 af sveitarfélögum á Vesturlandi og ríkinu í því augnamiði að nýta vatn úr Deildartunguhver í Borgarfirði til húshitunar í héraðinu og allt suður á Akranes, sem er í um 60 kílómetra fjarlægð. Var þessi vatnsmesti hver Evrópu virkjaður í þessu skyni og lengsta hitaveitulögn landsins var lögð, en 62 kílómetrar eru frá hvernum á Akranes. Árið 2002 lögðu sveitarfélögin eignarhlut sinn í HAB, ásamt fleiri eignum, inn í Orkuveitu Reykjavíkur. Þau hafa verið á meðal eigenda OR síðan og Orkuveitan farið með 80% hlut í HAB. Fjármálaráðherra hefur um árabil haft heimild Alþingis til að selja hlut ríkisins í HAB og haustið 2008 samþykkti stjórn Orkuveitu Reykjavíkur að leita eftir kaupum á hlut ríkisins. Þá lá fyrir að ráðast þyrfti í umfangsmiklar endurbætur á veitunni til að tryggja þjónustu við viðskiptavini hennar. Hefur verið unnið að þeim jafnt og þétt síðan en alfarið á ábyrgð Orkuveitu Reykjavíkur. Samkomulagið, sem undirritað var á föstudag, og sameining HAB og OR í kjölfarið, felur í sér að viðskiptavinir HAB verða framvegis á meðal viðskiptavina Orkuveitu Reykjavíkur. Verður þeim öllum send tilkynning þar að lútandi með hagnýtum upplýsingum sem lúta að samskiptum viðskiptavina við Orkuveituna.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira