Deutche bank gæti kært ríkið 13. mars 2010 18:26
Ríkið gæti átt yfir höfði sér málsókn frá Deutsche bank nái hugmyndir félagsmálaráðherra um afskriftir á bílalánum fram að ganga. Þýski bankinn er stærsti lánveitandi Lýsingar, sem færi í þrot. Stjórnvöld eru meðvituð um þessa hættu en telja sig geta komið í veg fyrir málsókn. Félagsmálaráðherra hyggst leggja fram nýtt frumvarp í næstu viku þar sem tekið er á vanda þeirra sem glíma við himinhá bílalán. Landsmenn skulda nærri 160 milljarða króna í bílalán og eru þeir verst staddir sem tóku slík lán í erlendri mynt. Búast má við að svokölluð 110% leið verði farin, sambærileg þeirri sem bankarnir hafa boðið fólki í yfirveðsettum fasteignum. Það þýðir að þeir sem skulda 6 milljónir vegna bíls sem er að markaðsvirði 3 milljónir fá afskrifað allt umfram 3,3 milljónir króna - í þessu tilfelli 2,7 milljónir. Uppnám ríkir í herbúðum fjármögnunar- og eignaleigufyrirtækja vegna væntanlegra aðgerða félagsmálaráðherra. Málið er á viðkvæmu stigi en menn þaðan sem fréttastofa hefur rætt við í dag telja tillögur ráðherra ekki hugsaðar til enda. Nái frumvarpið fram yrði það líklega náðarhöggið fyrir flest þeirra og talið er fullvíst að Lýsing fari í þrot. Verði Lýsing gjaldþrota telja heimildamenn fréttastofu að ríkið eigi yfir höfði sér málsókn frá Deutche Bank, stærsta lánveitanda Lýsingar, sem yrði fyrir miklu tjóni. Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, vill ekki tjá sig um málið að svo stöddu en unnið er að því hörðum höndum í ráðuneyti hans um helgina. Heimildir fréttastofu herma að stjórnvöld séu meðvituð um hættuna á lögsókn þýska bankans. Allt kapp sé lagt á að frumvarpið verði þannig úr garði gert að hvorki Deutche Bank, né aðrir sem gætu farið í mál - eigi erindi sem erfiði.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira