Saxbygg gerði verðmat á eigin eignum 8. febrúar 2010 00:01 Á meðal erlendra eigna Saxbygg sem félagið seldi fyrri eigendum eru fasteignaverkefni í Bretlandi og Þýskalandi. Fréttablaðið/Vilhelm
Fyrri eigendur Saxbygg seldu erlendar eignir félagsins fyrir brot af bókfærðu verðmæti þeirra til þriggja fyrirtækja í þeirra eigin eigu eftir að halla tók undan fæti í rekstri félagsins vorið 2008 og ljóst var að stefndi í milljarðatap. Í mars sama ár höfðu lánardrottnar barið á dyrnar og kallað eftir traustari veðum. Saxbygg tapaði 23,6 milljörðum króna árið 2008 og skuldaði 12,6 milljarða þegar það var tekið til gjaldþrotaskipta í maí í fyrra. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins mat Björn Ingi Sveinsson, framkvæmdastjóri Saxbygg, eignir félagsins í Bretlandi um svipað leyti og ljóst var hvert stefni. Lögfræðistofa í Þýskalandi mat eignir þar. Um haustið voru þær seldar til félaga í eigu eigenda ásamt eignarhlut í norska félaginu Stenia Holding. Björn er framkvæmdastjóri félaganna sem keyptu eignir Saxbygg. Þá situr einn eigenda þýsku lögmannsstofunnar í stjórn félags tengdu Saxbygg í Þýskalandi. Verðmat eignanna var allt að þrettán prósent af bókfærðu virði í bókum Saxbygg. Kaupendur greiddu fyrir með kúlulánum sem Saxbygg gaf út og greiðast í einu lagi eftir allt að þrjú ár. Lánin eru í norskum krónum, evrum og pundum og hljóða upp á 5,3 milljarða króna á núvirði. Um þarsíðustu áramót voru eignirnar seldar áfram til félags, sem skráð er í Bretlandi en óvíst hver á. Björn sagði í yfirlýsingu sem hann sendi í fyrradag eignirnar seldar eftir ítarlegt verðmat og söluna í samráði við helsta lánardrottin og erlenda meðeigendur. Saxbygg var umsvifamikið á íslenskum fjármála- og fasteignamarkaði. Þeir Gunnar Þorláksson og Gylfi Ómar Héðinsson, eigendur Byggingarfélagsins Bygg, áttu hvor sinn fjórðungshlut en Nóatúnsfjölskyldan svokallaða afgang. Á meðal systkinanna er Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs. Hann flutti lögheimili sitt til Bretlands seint í fyrra. Skiptastjóri þrotabús Saxbygg sagði í samtali við Fréttablaðið á fimmtudag gjörningana virðast hafa yfirbragð venjulegra viðskipta. Hann dregur þá í efa og krefst riftunar. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira