Saxo Bank: Íslendingum ber að greiða Icesave 20. janúar 2010 08:27
Lars Seier Christensen bankastjóri Saxo Bank segir að Íslendingum beri að greiða Icesave skuldir sínar og það sé engin leið fyrir þjóðina framhjá því. „Ég skil vel að Íslendingar séu æfareiðir yfir því að hafa reikning upp á 2 milljónir króna á mann hangandi yfir höfðum sínum. En þannig er bara raunveruleikinn," segir Christensen í grein sem hann hefur skrifað í Berlingske Business. Christensen segir að fólk verði að standa við skuldbindingar sínar ef það ætli sér að vera hluti af samfélaginu. Ef því líkar ekki sú staða er hægt að velja að flytja af landi brott. „Það er að sjálfsögðu eðlileg ákvörðun ef stjórnvöld hegða sér á óábyrgan hátt," segir Christensen. Saxo Bank er velkunnur aðstæðum á Íslandi en aðalgreinandi bankans, David Karsböl, sagði í febrúar 2008 að möguleikinn á gjaldþroti Kaupþings væri meir en nokkurn tíman áður. Fyrir þetta fékk Saxo Bank miklar ákúrur frá þáverandi stjórnarformanni Kaupþings, Sigurði Einarssyni, sem sagði Saxo Bank vera algerlega ábyrgðarlausan í tali sínu. Þessi orð Karsböl hefðu ekkert með raunveruleikann að gera. Annað kom svo á daginn. Lars Seier Christensen telur að Íslandi muni standa frammi fyrir óleysanlegum vandamálum ef þjóðin segir sig frá ábyrgð sinni á Icesave skuldinni. Hann vonar þó að lánadrottnarnir, Bretland og Holland, muni gefa eitthvað eftir þegar samið verður á ný. Christensen lýkur grein sinni á eftirfarandi orðum. „Íslendingar bæði geta og munu reisa sig við að nýju því þeir eru sterk og útsjónarsöm þjóð sem ekki hræðist erfiða vinnu. Ég óska ykkur allar hamingju og heppni."
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira