Birgir Leifur lék á 58 höggum á Akranesi! Jón Júlíus Karlsson skrifar 5. september 2010 21:30 Birgir Leifur var frábær á Garðavelli í dag. GettyImages
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, fór hamförum á Garðavelli í dag og lék völlinn á 58 höggum eða 14 höggum undir pari vallarins. „Þetta var ótrúlegur hringur og það gekk allt upp. Ég er búinn að stefna að því að leika undir 60 höggum frá því að ég var lítill drengur og magnað að ná þessum áfanga. Það er ótrúlegt að leika fjórtán höggum undir pari," segir Birgir Leifur sem þar með bætti vallarmet Heiðars Davíðs Bragasonar frá árinu 2007 um heil sjö högg en óvíst er hvort hann fáið vallarmetið staðfest. Fáheyrt er að kylfingar leiki á víðlíka skori hér á Íslandi og er jafnvel um besta hring á Íslandi að ræða. Það þykir býsna fréttnæmt þegar kylfingar erlendis ná að rjúfa 60 högga múrinn. Þetta er besti hringur Birgis á ferlinum en hann notaði 25 pútt á hringum og fékk engan skolla.
Golf Mest lesið Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Lunga NFL-stjörnu féll saman eftir nálastungumeðferð Sport Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Enski boltinn „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti David Silva: Ég var sá fyrsti sem Beckham vildi fá til Inter Miami Fótbolti „Stundum þarf maður heppni“ Enski boltinn Völsungar ráða ævintýramann sem þjálfara Sport Elsti maðurinn til að vinna leik á HM í pílu Sport Fleiri fréttir Áminntir fyrir að drekka einn bjór: Sagðir drukknir og hafa tekið „Happy Gilmore-sveiflu“ Ástand í Noregi: Hátt upp í fimm þúsund kylfingar án klúbbs Bananahýði gerði Rory McIlroy erfitt fyrir Dáður en umdeildur kylfingur látinn Gríðarleg fjölgun kylfinga: „Aðstaðan sprungin í höfuðborginni“ Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Sjá meira