Svissneskt fjölskyldufyrirtæki tryggir 400 störf 4. mars 2010 10:00
Með yfirtökunni á Íslenskum aðalverktökum eru tryggð um 400 störf hjá ÍAV, en starfsmannafjöldi ræðst þó af verkefnastöðu á hverjum tíma. Eigendaskipti á ÍAV skapa einnig ný tækifæri fyrir fyrirtækið og starfsmenn þess, m.a. með þátttöku í verkefnum erlendis. ÍAV mun áfram verða rekið í sömu mynd en nú sem íslenskt dótturfélag Marti og mun njóta styrks Marti samstæðunnar.Þetta kemur fram í tilkynningu um málið. Þar segir að Íslenskir aðalverktakar hf. (ÍAV) hafa skipt um eigendur. Arion banki og svissneska verktakafyrirtækið Marti Holding AG (Marti) hafa að undanförnu unnið með stjórnendum fyrirtækisins að endurskipulagningu þess.Niðurstaða þeirrar vinnu er sú að framtíð ÍAV sé best tryggð með yfirtöku Marti á ÍAV og samhliða mun Arion banki taka yfir fasteignahluta félagsins. Endurskipulagningu ÍAV mun ljúka á næstu vikum að lokinni áreiðanleikakönnun.Marti sem nú eignast og tekur yfir rekstur ÍAV, er svissneskt fjölskyldufyrirtæki sem á og rekur yfir 60 verktakafyrirtæki í Evrópu. Félagið hefur um árabil unnið með ÍAV á sviði jarðgangagerðar og var undirverktaki við jarðgangagerð í stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar.Þá er Marti einnig núverandi samstarfsaðili ÍAV við gerð Bolungarvíkurganga og snjóflóðavarnagarðs í Bolungarvík. Félagið er fjárhagslega mjög sterkt og hefur unnið að verkefnum víða um heim frá árinu 1922.Forráðamenn Marti hafa góða þekkingu á íslenskum aðstæðum og lýsa áhuga sínum á að taka þátt til framtíðar í uppbyggingu hér á landi og hyggst fyrirtækið ennfremur nýta sér þekkingu og reynslu Íslendinga við framkvæmdir erlendis.
Mest lesið Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Sjá meira