Viðræður um að koma Icesave í skjól hófust 2. júlí 2008 Sigríður Mogensen skrifar 4. mars 2010 14:47
Vinna við dótturfélagavæðingu Landsbankans í Bretlandi hófst eftir fund með breska fjármálaeftirlitinu 2. júlí 2008. Þá var ítarleg umsókn um dótturfélagavæðingu Icesave innlána í Hollandi tilbúin nokkrum dögum áður en bankinn féll. Icesave reikningarnir í Bretlandi og Hollandi tilheyra íslenska innistæðutryggingakerfinu því þeir voru í útibúum Landsbankans þar en ekki í sérstökum dótturfélögum. Vorið 2008 hófst neikvæð umræða um veikleika sameiginlegra innlánstryggingakerfa. Í framhaldi af því hófust viðræður á milli breska fjármálaeftirlitsins, FSA, og Landsbankans um lausafjárstýringu í útibúi Landsbankans í London.Vinnan hófst 2. júlí 2008 Heimildir herma að breska fjármálaeftirlitið hafi síðan óskað eftir því á fundi með forystumönnum Landsbankans, þann 2. júlí 2008, að bankinn hæfi vinnu sem miðaði að því að koma starfsemi sem tengdist Icesave í Bretlandi í sérstakt dótturfélag - og þannig í breska lögsögu. Landsbankinn hafði í framhaldi samband við Fjármálaeftirlitið og greindi frá ósk FSA. Mun Landsbankinn hafa óskað eftir sveigjanleika af hálfu FSA til að hægt væri að framkvæma yfirfærsluna í nokkrum skrefum en ekki var fallist á það. Vinnan varð tímafrek og ekki komin nógu langt þegar erfiðleikar bankanna tóku að hrannast upp haustið 2008. Færðu 200 milljónir punda frá Reykjavík til London Eftir þjóðnýtingu Glitnis og neikvæðar fréttir um stöðu íslensku bankanna hóf FSA að beina sjónum sínum að Icesave reikningum Landsbankans. Krafðist FSA þess síðan þann 2. október 2008 að Landsbankinn færði 200 milljónir punda frá Íslandi til Bretlands, til að mæta fyrirséðu útflæði af Icesave reikningunum um helgina. Mun Landsbankinn hafa gert það. FSA krafðist þess síðan seinnipartinn á föstudeginum 3. október að bankinn færði að auki 400 milljónir punda til Bretlands. Heimildir herma að Landsbankinn hafi sent Seðlabankanum minnisblað um þessa breytingu á stöðu bankans þann sama föstudag. Sunnudaginn 5. október lækkaði FSA síðan kröfur sínar í 200 milljónir punda.Flýtileið rædd Eins og fram hefur komið ræddu stjórnendur bankans síðan við FSA um möguleikann á flýtileið fyrir Icesave reikningana í breska lögsögu sunnudagskvöldið 5. október, daginn fyrir setningu neyðarlaganna. Tilboð þess efnis var munnlegt. Heimildir herma að þeir Sigurjón Árnason og Björgólfur Thor Björgólfsson hafi í kjölfarið sagt Tryggva Þór Herbertssyni, þáverandi efnahagsráðgjafa forsætisráðherra, frá möguleikanum á flýtimeðferð. Hefur Tryggvi Þór greint frá því opinberlega sjálfur. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, mun hins vegar ekki hafa haft vitneskju um samtal Landsbankamanna við FSA. Landsbankinn óskaði þá eftir 200 milljóna punda láni frá Seðlabankanum, en lánsbeiðninni var hafnað. Heimildir herma að lánsbeiðninni hafi ekki fylgt skýr skilaboð um að möguleiki væri á flýtimeðferð á Icesave inn í breska lögsögu. Dótturfélagavæðing Icesave í Bretlandi hófst þannig þremur mánuðum fyrir bankahrun, en allt kom fyrir ekki og lenti Icesave á íslenska innistæðutryggingakerfinu. Ítarleg umsókn um yfirfærslu Icesave reikninganna í Amsterdam í Hollandi úr útibúi í dótturfélag var einnig tilbúin til framlagningar í byrjun október 2008, nokkrum dögum fyrir fall Landsbankans.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira