Fyrsta tap í sögu Mærsk skipafélagsins í Danmörku 4. mars 2010 08:36
A.P. Möller-Mærsk skipafélagið skilaði gífurlegu tapi á síðasta ári eins og væntingar voru um. Þetta er fyrsta árið í sögu félagsins sem það skilar tapi en félagið á rætur sínar að rekja til upphafs síðustu aldar.Tapið í fyrra nam 5,5 milljörðum danskra kr. eða rúmum 128 milljörðum kr. Til samanburðar má nefna að Mærsk skilaði hagnaði árið 2008 upp á 17,5 milljarða danskra kr., að því er segir í frétt á Jyllands-Posten.Fyrir utan rekstur flutningaskipa um allan heim er Mærsk einnig umsvifamikið í olíuleit og vinnslu. Það er einkum mikið tap á flutningadeild félagsins, Mærsk Line, sem veldur afleitu uppgjöri fyrir árið í fyrra en Mærsk Line var rekin með 11,2 milljarða danskra kr. tapi.Í tilkynningu frá Mærsk um uppgjörið segir að horfur fyrir árið í ár séu bjartar og reiknar félagið með að skila aftur hagnaði á árinu. Það er þó háð töluverði óvissu m.a. hvað varðar þróun á olíuverði og gengi dollarans.
Mest lesið Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Fleiri fréttir Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira