SÍ hyggst koma á uppboðsmarkaði með gjaldeyri 25. maí 2010 10:18 Seðlabanki Íslands mun stjórna verðinu, upphæðinni og tímasetningu við framkvæmdina. Allir fjárfestar sem hafa hug á að flytja fjármuni úr landi munu fá sömu meðferð og fjármagnsflutningarnir munu lúta takmörkunum sem byggjast á verði.
Seðlabanki Íslands (SÍ) hyggst koma á fót uppboðsmarkaði með gjaldeyri sem lið í afnámi gjaldeyrishaftanna í náinni framtíð. Þetta kemur fram í skjali sem Selabankinn gaf út í ágúst í fyrra undir heitinu „Afnám gjaldeyrishaftanna".Í skjalinu stendur að stjórnvöld muni, þegar nægilegum gjaldeyrisforða hefur verið safnað, gefa út og bjóða út skammtímavíxla í evrum, samkvæmt EMTN-áætlun sinni. Hér er einkum miðað að því að miðlungs- og skammtímaskuldabréf í krónum verði gefin frjáls í áföngum.„Í uppboðunum verður samþykktum tilboðsgjöfum boðið að breyta krónum í evrur á opinberu gengi Seðlabanka Íslands til að kaupa víxlana. Í reynd myndu fjárfestar breyta eignarhlutum sínum í íslenskum krónum í framseljanlega eign sem gefin hefur verið út í evrum," segir í skjalinu.„Seðlabanki Íslands mun stjórna verðinu, upphæðinni og tímasetningu við framkvæmdina. Allir fjárfestar sem hafa hug á að flytja fjármuni úr landi munu fá sömu meðferð og fjármagnsflutningarnir munu lúta takmörkunum sem byggjast á verði.Fjárfestirinn ákveður sjálfur hvort hann tekur þátt eða ekki, en heildarupphæð erlends gjaldeyris sem nýttur verður í þessu skyni verða settar fyrirfram ákveðnar skorður. Þar sem útboðsfyrirkomulagið gerir þeim sem eru reiðubúnir að greiða mest kleift að flytja fé sitt úr landi, gefur það óþolinmóðustu fjárfestunum færi á að fara fyrst og dregur því úr hvata til að fara í kringum gjaldeyrishöftin.Þetta gefur svigrúm til sveigjanlegri stýringar bæði eigna í forða og fjármagnsflutninga úr landi sem eru háðir flæði greiðslujafnaðar, án þess þó að þörf sé á áreiðanlegum langtímaspám um greiðslujöfnuð.Þar sem heildarupphæð erlends gjaldeyris til ráðstöfunar er haldið innan fyrirfram ákveðinna marka ætti það að tryggja að stærð gjaldeyrisforðans verði áfram viðunandi. Ferlið mun ekki hafa bein áhrif á millibankamarkaðinn."
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira