Kaupþing hélt veldi Tchenguiz lifandi 20. apríl 2010 00:01 Robert Tchenguiz
Íraksættaði fjárfestirinn Robert Tchenguiz og félög honum tengd skulduðu Kaupþingi rétt tæpa þrjú hundruð milljarða króna þegar bankinn féll í október 2008. Í rannsóknarskýrslu Alþingis kemur fram, að Kaupþing hafi verið helsti fjárhagslegi bakhjarl Roberts Tchenguiz, sem var óbeint einn af helstu eigendum bankans. Að minnsta kosti sex félög Tchenguiz fengu lán hjá Kaupþingi til nokkurra verkefna. Hæsta lánið var upp á jafnvirði 54 milljarða króna til félagsins Razino Properties. Um var að ræða framvirkan samning um kaup á hlutabréfum í bresku stórversluninni Sainsbury’s. Fram kemur í skýrslunni að samningurinn hafi ævinlega verið framlengdur og var hann enn óuppgerður við fall bankans haustið 2008. Samningar fyrirtækja Tchenguiz gagnvart Kaupþingi voru sameinaðir undir merkjum Oscatello Investments síðla árs 2007. Félagið er skráð í skattaparadís á bresku Jómfrúreyjum. Þegar erlendir lánardrottnar kölluðu eftir auknum tryggingum hjá Tchenguiz vegna viðskipta við hann tóku stjórnendur Kaupþings upp lyklana að sjóðum sínum og bættu við í skuldafen athafnamannsins. Þar á meðal var yfirdráttarheimild, sem stóð í sex hundruð milljónum punda, jafnvirði rúmra áttatíu milljarða íslenskra króna, í lok maí 2008. Lán frá Kaupþingi hlóðust utan á Oscatello líkt og snjóboltar á ferð niður hlíð og fóru yfir 25 prósenta eiginfjárgrunn Kaupþings snemma árs 2008. Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er spurningarmerki sett við þessar lánveitingar og bent á að á sama tíma og aðrir bankar voru að vinna í því að bæta stöðu sína gagnvart félögum Tchenguiz veitti Kaupþing lán til þeirra. Þá var þetta á sama tíma og lausafjárvandræði íslensku bankanna voru að verða mjög mikil. Lán Tchenguiz voru að mestu fengin hjá banka Kaupþings í Bretlandi. Háar upphæðir runnu sömuleiðis til félaga hans úr hirslum bankans í Lúxemborg. Tchenguiz tengdist Kaupþingi eigendaböndum en hann var einn af tíu stærstu eigendum Existu. Exista var helsti eigandi Kaupþings. Í rannsóknarskýrslunni segir að af þeim sökum megi færa rök fyrir því að flokka hafi átt Tchenguiz og Existu sem tengda aðila. Það var ekki gert. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Súperdósin snýr aftur Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira