Vilhjálmur Egilsson telur botninum náð hjá Gildi 20. apríl 2010 13:26 „
Það er þungt að þurfa að lækka réttindin", segir Vilhjálmur Egilsson, formaður stjórnar Gildi lífeyrissjóðs. Vilhjálmur telur að botninum sé náð í afskriftum hjá lífeyrissjóðnum, sem ætlar að skerða lífeyrisréttindi um 7%.Stjórn Gildis lífeyrissjóðs, þriðja stærsta lífeyrissjóðs landsins, leggur til að áunnin réttindi sjóðfélaga við síðustu áramót verði lækkuð um 7%. Lækkun á lífeyrisgreiðslum kemur til framkvæmda í tvennu lagi, 1. júní og 1.nóvember.Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og formaður stjórnar Gildis segir að það megi segja að lífeyrisgreiðslur fari nú aftur á sama stað og þær voru áður en uppgangstímabilið hófst árið 2006. Þá hafi Gildi hækkað réttindin. „Við erum að standa við það loforð að veita verðtryggðan lífeyri, áður hækkuðum við umfram verðtrygginguna og erum núna að taka það til baka og stöndum núna eftir með verðtryggðan lífeyri," sagði Vilhjálmur í samtali við fréttastofu í morgun.En fóru lífeyrissjóðirnir ekki óvarlega í því að kaupa skuldabréf af bönkunum, Baugi og fleiri fyrirtækjum? „Jú það má segja að á þessum markaði hafi ríkt hjarðhegðun og Gildi er ekki undanskilinn í þeim efnum," segir Vilhjálmur.Vilhjálmur segist vona að ekki komi til frekari skerðingar en aldrei sé hægt að segja nákvæmlega til um það fyrirfram.„Okkur þykir afar erfitt að þurfa að taka það til baka sem kannski var aldrei nein innistæða fyrir þegar upp er staðið, það er þungt að þurfa að lækka réttindi, en mér sýnist við vera komin niður á botninn í afskriftum hjá sjóðnum," segir Vilhjálmur.
Mest lesið Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Sjá meira