VBS réð ekki við lága vexti ríkisláns 6. mars 2010 03:00 Forstjóri VBS segir bankann hafa átt nægt fé til að greiða vexti af 26 milljarða króna láni í desember. Rekstrartekjur dugðu hins vegar ekki. Fréttablaðið/gva
VBS fjárfestingarbanki átti aðeins að borga í kringum hálfan milljarð króna í vaxtagreiðslu af 26,4 milljarða króna láni frá ríkinu vegna endurhverfra viðskipta hans við Seðlabankann. Hann réð ekki við greiðsluna í desember og varð úr að FME tók yfir stjórn bankans til bráðabirgða í vikunni. Jón Þórisson, forstjóri VBS, segir bankann hafa átt fyrir afborguninni enda með 3,5 milljarða króna inni á reikningi hjá Seðlabankanum. Með samþykki Seðlabankans hafi verið ákveðið að nýta ekki féð heldur fresta vaxtagreiðslu. „En í augnablikinu hefði rekstur bankans ekki ráðið við afborganir af láninu," segir hann og bendir á að stjórnarskiptin hafi verið liður í endurskipulagningu VBS að undirlagi Seðlabankans. Lánið er til sjö ára á tveggja prósenta verðtryggðum vöxtum og átti aðeins að greiða vexti fram undir lok næsta árs en þá bætast afborganir við. Kröfu Seðlabankans á hendur Saga Capital var breytt í lán á sambærilegum kjörum. Lánin voru veitt í mars í fyrra og höfðu bankarnir tvo valkosti: taka boðinu eða hafna því. Fjármálaráðuneytið taldi fyrri kostinn auka líkurnar á fullum heimtum. Líkt og fram kom í Fréttablaðinu í vikunni lánaði VBS að mestu til fasteignatengdra verkefna, sumra sem ekkert varð úr. Bankinn hefur síðastliðin tvö ár þurft að taka til sín nokkurt magn lóða, svo sem á Suðurlandi, upp í skuldir og sat á miklu fasteignasafni þegar gjalddaginn rann upp. Erfitt reyndist að losa um eignir og skorti VBS því laust fé til að standa við skuldbindingar sínar. Mál VBS er í vinnslu innan Seðlabankans, sem leitar eftir því að hámarka verðmæti krafna sinna. Krafan á VBS fer líklega inn í Eignasafn Seðlabankans, sem sett var á laggirnar um áramótin og heldur utan um kröfur á hendur fjármálafyrirtækjum sem falla bankanum í skaut. - ja
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira