Slippfélagið átti allt sitt undir Hempel 30. janúar 2010 06:15 Danski málningarvöruframleiðandinn Hempel gerði samning við Slippfélagið um framleiðslu á málningarefnum árið 1951 en sleit þeim um síðustu áramót. Fréttablaðið/Vilhelm
Landsbankinn, NBI, gerði nokkrar árangurslausar tilraunir til að selja málningarvöruverslunina Slippfélagið nálægt upplausnarvirði áður en tilboði eigenda Málningar í reksturinn var tekið fyrir tæpum hálfum mánuði, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Nokkuð hefur borið á gagnrýni vegna sölunnar og hefur Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar Alþingis, lýst yfir áhyggjum af ógagnsæi fyrirtækjasölu bankanna. Þá hefur Fréttablaðið heyrt í einstaklingi sem telur sig hlunnfarinn enda ekki fengið að bjóða í fyrirtækið. Landsbankinn tók Slippfélagið yfir í fyrrahaust. Skipamálning frá Hempel hefur í tæp sextíu ár numið um helmingi af veltu Slippfélagsins og réð það miklu um framtíð fyrirtækisins. Á meðal krafna Hempel var að Landsbankinn seldi ekki Slippfélagið í opnu söluferli. Þetta er sambærileg krafa og áður hefur verið sett fram, svo sem í tengslum við yfirtöku á Vífilfelli, sem er með umboð frá Coca Cola, og Toyota-umboðinu. Fyrri eigendur Slippfélagsins ætluðu að leggja fram tilboð í reksturinn. Félag þeirra, Ísalind, varð hins vegar gjaldþrota áður en af því varð. Botninn tók úr rekstrargrundvelli Slippfélagsins nokkru fyrir síðustu áramót þegar Hempel sleit samningum við fyrirtækið. Nokkrir sölumenn Slippfélagsins tryggðu sér umboðið og fluttu með sér yfir til Flügger á Íslandi. Þessi þróun setti verulegt strik í reikninginn og hefur Fréttablaðið heimildir fyrir því að í kjölfarið hafi verðmæti Slippfélagsins hrapað í bókum bankans. Ljóst var að staða Slippfélagsins versnaði mikið við að missa umboðið frá Hempel, jafnvel óvíst að fyrirtækið gæti staðið við skuldbindingar sínar. Tilboðsferlinu var því flýtt og sjö aðilum boðið að borðinu og bjóða í Slippfélagið nálægt upplausnarvirði. Tilboðin voru öll undir væntingum ef frá er talið tilboð Málningar. jonab@frettabladid.is
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira