Fjöldi gjaldþrota hefur ekki verið meiri í tvo áratugi á Íslandi 7. janúar 2010 11:13
Alls hafa 823 fyrirtæki verið úrskurðuð gjaldþrota á fyrstu 11 mánuðum ársins 2009 sem eru 23% fleiri fyrirtæki en á sama tímabili 2008. Fjöldi gjaldþrota hefur ekki verið meiri í a.m.k. tvo áratugi, eða eins langt aftur og tölur Hagstofunnar ná en það var sú stofnun sem birti tölur um þetta í gærmorgun. Í Morgunkorninu segir að árið 2009 var aukning gjaldþrota mest á fyrsta þriðjungi ársins en svo tók við tímabil þar sem fjöldi gjaldþrota fyrirtækja var viðlíka eða jafnvel minni en á sama tímabili í fyrra. Í september tók svo gjaldþrota fyrirtækjum að fjölga á ný og voru þau um 65% fleiri en í sama mánuði árið 2008. Má reikna með að mörgum þeirra fyrirtækja sem hafa orðið illa út í efnahagshremmingum síðustu misseri hafi verið haldið uppi af bönkum og koma þannig afleiðingar kreppunnar fram með töf í gjaldþrotatölum. Ljóst er að fjöldi fyrirtækja er í verulegum greiðsluerfiðleikum en samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum var um fjórðungur fyrirtækja með lán í vanskilum í lok júní síðastliðinn og sökum þess hve stór hluti útlána til fyrirtækja eru kúlulán er líklegt að tölur um vanskil vanmeti vanda fyrirtækja. Ytri aðstæður í hagkerfinu hafa verið afar erfiðar í byggingariðnaði og er sá samdráttur sem orðið hefur í þessari tegund af starfsemi einnig sjáanlegur í atvinnuleysistölum. Alls hafði um fimmtungur þeirra sem voru án atvinnu í nóvember starfað í mannvirkjagerða, eða rúmlega 2.500 manns. Áður en bankahrunið skall á í byrjun október 2008 var fjöldi atvinnulausra sem áður hafði starfað við mannvirkjagerð rúmlega 200 manns.
Mest lesið Kvartanir vegna bílastæðamála daglegt brauð hjá Neytendastofu Neytendur „Það er hægt að byrja að fjárfesta með fimm þúsund krónum á mánuði“ Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Bretland aftur inn í Reiki í Evrópu hjá Sýn og Símanum Neytendur „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Samstarf Lífsferilsgreining Polestar 4 sýnir lægsta kolefnisspor allra Polestar bíla Samstarf Rukkuð um sex þúsund kall eftir lagningu á Snæfellsnesi Neytendur Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Viðskipti innlent „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Sjá meira