Bréfin engin sönnun heldur formlegt svar á háspenntum tímum 12. febrúar 2010 12:24 Björgvin G. Sigurðsson.
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrum viðskiptaráðherra, segir bréfin tvö sem birtust í hollenskum fjölmiðlum í gær, og átti að styðja við fullyrðingar Nout Wellink, seðlabankastjóra Hollands og Arnolds Schilder, yfirmanns hollenska bankaeftirlitsins um að íslenska ríkið hefði logið um stöðu Landsbankans fram á síðasta dag, vera formleg svör ráðuneytisins. Hann segir orðalagið mjög vandlega hugsað og gefi ekkert annað í skyn en að ríkið myndi standa á bak við sjóðinn færi illa fyrir Landsbankanum. Bréfin birtust á hollenskum vefmiðlum í gær og voru bréfaskriftir á milli viðskiptaráðuneytisins og breska fjármálaráðuneytisins. Í fyrra bréfinu sagði meðal annars að íslenska ríkið myndi styðja við sjóðinn eins og ábyrg stjórnvöld myndu gera færi svo að hann gæti ekki staðið við skuldbindingar sínar. Svo var bætt um betur og sagt að ríkið myndi að auki styðja við sjóðinn fjárhagslega til þess að hann gæti tryggt lágmarksupphæð innistæðueiganda. Seinna bréfið, sem viðskiptaráðuneytið sendi til breska fjármálaeftirlitsins þann 5. október, sagði að íslenska ríkið myndi styðja við tryggingainnistæðusjóðinn til þess að mæta lágmarkstryggingaupphæð innistæðueigenda færi Landsbankinn á hausinn. En þá voru ekki nema örfáir dagar í fall bankans. „Þetta var formlegt svar á gríðarlega háspenntum tímum," sagði Björgvin um bréfin. Hann tekur fram að þegar seinna bréfið var ritað var ástandið hér á landi mjög viðkvæmt enda aðeins örfáir dagar í kerfishrun íslensku bankanna. Þá bendir Björgvin á að bréfin hafi verið opinber í meira en ár og því engin leyndarmál að finna í þeim. Spurður hvort þessum bréfum hafi verið haldið gegn Íslandi í viðræðum um ábyrgð á Icesave-skuldinni segir hann þvert á móti það sýna að Ísland hafi alltaf ætlað að standa við sínar skuldbindingar. Eftir að seðlabankastjóri Hollands og yfirmaður hollenska bankaeftirlitsins báru lygar upp á íslensk stjórnvöld hefur Wouter Bos, fjármálaráðherra Hollands, fyrirskipað rannsókn á þeim ásökunum. „Ég fagna þessari rannsókn," segir Björgvin um rannsóknina en sjálfur skrifaði hann bréf í hollenskt dagblað sér til varnar þar sem hann sagði það ekki rétt að íslensk stjórnvöld hefðu logið að þeim hollensku. „Enda voru samskipti ríkisstjórnanna engin," segir Björgvin þó svo að samskipti hafi verið á milli seðlabanka og fjármálaeftirlita landanna.
Tengdar fréttir Hollendingar segja Íslendinga víst hafa logið - sýna bréf til sönnunar Hollenski vefmiðillin RTLZ birti í gær bréfasamskipti á milli viðskiptaráðuneytisins á Íslandi við breska fjármálaráðuneytið og telur greinarhöfundur bréfin sýna fram á að Ísland hafi logið fram á síðasta dag um raunverulega stöðu mála og styðji því við fullyrðingar Nout Wellink, seðlabankastjóra Hollands og Arnolds Schilder, yfirmanns hollenska bankaeftirlitsins um meinar lygar íslenska ríkisins. 12. febrúar 2010 10:11 Mest lesið Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Atvinnulíf Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Viðskipti innlent „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Markaðurinn tók tíðindunum vel Viðskipti innlent Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Viðskipti erlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Nvidia metið á 615 billjónir króna Viðskipti erlent Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Samstarf Fleiri fréttir Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Vaxtahækkun í maí blasi við Sjá meira
Hollendingar segja Íslendinga víst hafa logið - sýna bréf til sönnunar Hollenski vefmiðillin RTLZ birti í gær bréfasamskipti á milli viðskiptaráðuneytisins á Íslandi við breska fjármálaráðuneytið og telur greinarhöfundur bréfin sýna fram á að Ísland hafi logið fram á síðasta dag um raunverulega stöðu mála og styðji því við fullyrðingar Nout Wellink, seðlabankastjóra Hollands og Arnolds Schilder, yfirmanns hollenska bankaeftirlitsins um meinar lygar íslenska ríkisins. 12. febrúar 2010 10:11