Einkaneysla landsmanna að ná einhverju jafnvægi 12. febrúar 2010 11:54
Af þróun kortaveltunnar á síðustu mánuðum má ráða að einkaneysla landsmanna sé að ná einhvers konar jafnvægi eftir afar snarpan samdrátt undanfarna átján mánuði eða svo. Kortaveltan hefur hins vegar dregist saman um ríflega þriðjung að raungildi frá því góðærið stóð sem hæst um miðjan síðasta áratug og má ætla að langur tími líði þangað til þeim hæðum verður náð á nýjan leik.Þetta segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar kemur fram að kortavelta einstaklinga innanlands í janúar var lítið eitt minni að raungildi en á sama tíma í fyrra. Reiknað á föstu verðlagi og gengi var veltan hins vegar ríflega þriðjungi minni en raunin fyrir réttum fjórum árum síðan.Samkvæmt tölum um greiðslumiðlun sem Seðlabankinn birti í gær nam kreditkortavelta í janúarmánuði 28,8 milljörðum kr., sem í krónum talið er mesta kreditkortavelta í einum mánuði frá ágúst 2008.Krónutalan gefur þó ekki glögga mynd af umsvifum íslenskra neytenda í síðasta mánuði sakir þess hversu verðlag á innlendri og erlendri neyslu hefur hækkað undanfarin misseri. Leiðrétt fyrir þróun verðlags og gengis var kreditkortavelta í janúar, sem vitaskuld endurspeglar að verulegu leyti jólaneyslu landsmanna, þó ríflega 10% meiri en raunin var fyrir ári síðan.„Að okkar mati gefa raunbreytingar á samanlagðri kreditkortaveltu og debetkortaveltu einstaklinga innanlands býsna glögga mynd af þróun einkaneyslu hér á landi. Debetkortavelta hefur skroppið meira saman en kreditkortavelta undanfarið, og heildarniðurstaðan er því sú að kortavelta, mæld á þennan kvarða, var 1% minni að raungildi í nýliðnum janúar en raunin var í upphafi síðasta árs," segir í Morgunkorninu.Auk vísbendinga um þróun einkaneyslu má nýta tölur um greiðslumiðlun til að ráða í þróun þjónustujafnaðar, og þar með gjaldeyrisflæði vegna útflutnings og innflutnings á þjónustu. Um mitt síðasta ár brá svo við, í fyrsta sinn frá því farið var að halda tölum um greiðslukortaveltu útlendinga hér á landi, að hún reyndist meiri en kortavelta Íslendinga á erlendri grundu.Afturkippur hefur þó orðið hvað þetta varðar og var kortavelta landsmanna erlendis 6,6 milljörðum kr. meiri á síðasta fjórðungi liðins árs en kortavelta útlendinga hér á landi. Gefur það til kynna að afgangur af þjónustujöfnuði á því tímabili kunni að hafa verið með minna móti og að gjaldeyrisinnstreymi vegna hans hafi að sama skapi verið lítið á þessum tíma."
Mest lesið Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Viðskipti innlent Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Sjá meira
Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Viðskipti innlent
Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Viðskipti innlent