Gasol og Kobe fóru á kostum í sigri Lakers Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. maí 2010 09:07 Kobe Bryant og Pau Gasol í leiknum í nótt. Mynd/AP
LA Lakers er komið í 2-0 gegn Phoenix í úrslitaeinvígi Vesturstrandarinnar í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Lakers vann í nótt, 124-112, og hefur nú skorað að meðaltali 126 stig í fyrstu tveimur leikjum rimmunnar sem báðir hafa farið fram á heimavelli Lakers. Næstu tveir fara svo fram í Phoenix. „Ég hef ekki hugmynd," sagði Grant Hill spurður hvernig lið Phoenix ætlaði að nota tímann fram að næsta leik en liðin fá nú fjögurra daga frí. „Það er kannski gott að fá smá frí. Kannski þurfum við að hugsa þetta upp á nýtt en við fengum nú þessa tvo leiki til að sjá hvað þeir eru að gera." Phil Jackson hefur enn ekki tapað rimmu í úrslitakeppni eftir að lið hans vann fyrsta leikinn í alls 46 tilraunum og Lakers hefur aðeins einu sinni tapað í sögunni eftir að hafa komist 2-0 yfir. „Við verðum bara að verjast betur," sagði Steve Nash, leikstjórnandi Phoenix. Pau Gasol og Kobe Bryant fóru á kostum í leiknum í nótt. Gasol var með 29 stig, níu fráköst og fimm stoðsendingar en Bryant með 21 stig og þrettán stoðsendingar. Ron Artest náði sér einnig vel á strik og skoraði átján stig. Lamar Odom var með sautján. Jason Richardson skoraði 27 stig, Hill var með 23 og Amare Stoudemire átján.
NBA Mest lesið Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Fannst látinn í hótelherbergi sínu Sport Hélt áfram að keppa þótt að kærastan lægi meðvitundarlaus í gólfinu Sport Rekinn sextán mánuðum eftir skandalinn Formúla 1 „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi” Fótbolti „Heimskuleg spurning og dónaleg“ Fótbolti Landsliðskona tryggir sér 993 milljóna skósamning Fótbolti Staðfestir eina breytingu á byrjunarliðinu í leiknum á morgun Fótbolti Sláandi tölfræði Sveindísar: Eitt skot á markið á 419 mínútum á EM Fótbolti Sögðu Betu að drulla sér frá Belgíu: „Nýtt fyrir mér“ Fótbolti Fleiri fréttir Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Sjá meira