Yfirlýsing PwC „játning“ um að endurskoðendur hafi brugðist Þorbjörn Þórðarson skrifar 2. desember 2010 12:54 Slitastjórn Landsbankans. Þau telja að PwC hafi brugðist við endurskoðun ársreikning Landsbankans.
PricewaterhouseCoopers, endurskoðendur Landsbankans, telja sig ekki hafa getað gerst segir um vanrækslu við endurskoðun ársreikninga því þeir hafi ekki haft gögn. Lektor í viðskiptafræði segir þetta ekki standast skoðun því endurskoðendur geti auðveldlega kallað eftir gögnum. Slitastjórn Landsbankans telur að PricewaterhouseCoopers beri ábyrgð á röngum og villandi ársreikningum bankans fyrir árið 2007 og árshlutauppgjörum ársins 2008. Þannig hafi reglum um stórar áhættur ekki verið fylgt og eigið fé sennilega verið langt undir löglegum mörkum löngu fyrir hrun. Í yfirlýsingu frá PricwaterhouseCoopers sem fyrirtækið sendi í gærkvöldi segir að hlutverk þeirra hafi verið að láta í té álit á ársreikningum og hafa skoðun á því hvort reikningsskilin væru í samræmi við lög og reglur. Niðurstöðurnar hafi tekið mið af þeim upplýsingum sem þeir höfðu aðgang að á þeim tíma sem endurskoðun fór fram.„Góð játning í erfiðu máli" Vilhjálmur Bjarnason, lektor í viðskiptafræði, segir þessar skýringar ekki standast skoðun. „Þetta er fyrst of fremst staðfesting á því endurskoðendurnir hafi ekki fylgt þeirri rannsóknarskyldu sem þeim ber að fylgja. Fjármálafyrirtæki starfa eftir ýmis konar löggjöf, fyrst og fremst lögum um fjármálafyrirtæki og hlutafélalögum. Í hlutafélagalögum er gert ráð fyrir miklum eftirlitsskyldum endurskoðenda og í lögum um fjármálafyrirtæki er marghamrað á áhættuþáttum í rekstri fjármálafyrirtækja. Að þessu samanlögðu eru miklar skyldur á endurskoðendum að fylgjast með þeim þáttum sem varða áhættu, þ.á.m stórum áhættuskuldbindingum og tengdum aðilum. Þetta hvort tveggja viðurkennir Pricewaterhouse að fyrirtækið hafi ekki fylgt, lögum samkvæmt. Þetta er því góð játning í jafn erfiðu máli og staðfestir það sem ég hef haldið fram að endurskoðendur hafi brugðist skyldum sínum í hruninu," segir Vilhjálmur.
Tengdar fréttir Telja að bankinn hafi blekkt með ársreikningum Slitastjórn Landsbankans telur að bankinn hafi veitt rangar upplýsingar í ársreikningum árið 2007 og ætlar að krefjast bóta frá endurskoðendum af þeim sökum. 1. desember 2010 15:18 Mest lesið Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira
Telja að bankinn hafi blekkt með ársreikningum Slitastjórn Landsbankans telur að bankinn hafi veitt rangar upplýsingar í ársreikningum árið 2007 og ætlar að krefjast bóta frá endurskoðendum af þeim sökum. 1. desember 2010 15:18