Tekjubil á Íslandi hefur breikkað frá 2004 til 2009 15. mars 2010 09:04
Tekjubil á Íslandi hefur breikkað ef mið er tekið af þróun Gini-stuðuls og upplýsinga úr lífskjararannsóknum 2004 til 2009. Hlutfall Íslendinga undir lágtekjumörkum hefur hins vegar haldist nær óbreytt á umræddu tímabili.Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að svo virðist sem þróunin sé á þann veg að þeir tekjulægstu séu í svipaðri stöðu samanborið við miðgildið, eða meðalmanninn, en þeir tekjuhæstu séu á sama tímabili að hækka hlutfallslega meira en aðrir.Gini-stuðullinn, sem sýnir dreifingu ráðstöfunartekna meðal landsmanna á einkaheimilum, var 29,6 árið 2009. Stuðullinn væri 100 ef einn maður væri með allar tekjurnar en 0 ef allir hefðu jafnar tekjur. Gini-stuðullinn hefur farið hækkandi frá 2004 en þá var hann 24,1.Lágtekjuhlutfall var 10,2% á Íslandi árið 2009 og hefur lítið breyst frá árinu 2004 þegar það var 10%. Lágtekjuhlutfall er skilgreint sem 60% af ráðstöfunartekjum á neyslueiningu en þær byggjast á ráðstöfunartekjum heimila og hversu margir þurfa að lifa af þeim.Af 29 Evrópuþjóðum var Ísland í 10. til 11. sæti þegar þjóðunum er raðað frá þeirri sem var með lægsta Gini-stuðulinn til þeirrar sem hafði hæsta stuðulinn. Tölurnar fyrir alþjóðlega samanburðinn eru fyrir árið 2008. Af 29 Evrópuþjóðum var Ísland með næst lægsta lágtekjuhlutfallið á eftir Tékklandi.Ef litið er til aldurs og kyns kemur í ljós að hlutfall þeirra sem voru undir lágtekjumörkum í lífskjararannsókninni 2009 var hæst hjá konum á aldrinum 18 til 24 ára eða rúm 20,6% og hjá konum 65 ára og eldri, tæp 18%.Hlutfall undir lágtekjumörkum var lægst hjá fólki í aldurshópnum 50 til 64 ára.Hlutfallslega fleiri sem bjuggu einir eða voru einir með börn voru undir lágtekjumörkum en þeir sem bjuggu á annars konar heimilum. Það sama gildir um þá sem bjuggu í leiguhúsnæði samanborið við þá sem bjuggu í eigin húsnæði.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira