Veisla hjá loðdýrabændum, seldu fyrir 150 milljónir 10. febrúar 2010 14:15
Íslenskir loðdýrabændur seldu minkaskinn fyrir um 150 milljónir kr. á uppboði hjá Kopenhagen Fur í vikunni. Verð á minkaskinnum á uppboðinu hækkaði um 13% frá uppboðinu í desember en þá hækkaði verðið um 36%.Samkvæmt frétt um uppboðið í Politiken voru fjórar milljónir minkaskinna seldar hjá Kopenhagen Fur í Glostrup og fengust 1,4 milljarðar danskra kr. fyrir. Hefur veltan á einu uppboði minkaskinna í Danmörku aldrei verið meiri í sögunni.Meðalverð á skinn nam 324 dönskum kr. og segir Björn Halldórsson formaður Samtaka íslenskra loðdýraræktenda að nær 20.000 íslensk skinn hafi verið seld á uppboðinu. Annars selja íslenskir loðdýrabændur sín skinn aðallega á uppboðum Kopenhagen Fur í apríl og júní.Björn reiknar með að fjöldi íslenskra skinna í apríl nemi 40-50.000 og að í júní verði 60.000 skinn seld. „Þetta verð sem nú fæst fyrir minkaskinn er eitthvað sem okkur dreymdi aldrei um," segir Björn. „Það hefði verið óskandi að hafa átt 200.000 skinn til að senda á uppboðið núna."Eins og á uppboðinu í desember voru það Kínverjar sem keyptu mest eða yfir helming af þeim 4 milljónum skinna sem í boði voru. Reiknað er með áframhaldandi eftirspurn frá Kína í ár en spurningin er hvort verðið hækki mikið frá því sem nú er. Hækkunin nú upp á 13% kom á óvart enda hækkuðu skinnin í verði um nær 70% á síðasta ári.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Valin vinsælust: „Lopapeysan og þetta reddast sjarminn einfaldlega selur“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Sjá meira