LeBron James búinn að skipuleggja Free Agency Tour 2010 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. júní 2010 11:00 LeBron James Mynd/GettyImages
LeBron James ætlar að hegða sér eins og vinsæl rokkhljómsveit á tónleikaferðalagi þegar hann í sumar heimsækir NBA-liðin sem hafa áhuga á að fá hann til sín. James er nefnilega búinn að skipuleggja "Free Agency Tour 2010". Samkvæmt þessum fréttum af því sem er að gerast á bak við tjöldin í herbúðum LeBron James þá ætlar hann greinilega að taka til sín eins mikla athygli og hann getur áður en hann ákveður hvar hann muni spila í NBA-deildinni á næsta ári. LeBron James er með lausan samning og þó að hann hafi ýjað að því að liðið hans síðustu sjö tímabil, Cleveland Cavaliers, hafi smá forskot á önnur lið þá er líklegast að flestra mati að hann fari til annaðhvort New York Knicks eða Chicago Bulls. Ferðlagið hefst 1. júlí þegar James má byrja að tala við lið og hann ætla jafnvel að láta hann sérstakan skó fyrir hvern stað. Á þessa skó verður áletrun með dagsetningu heimsóknarinnar. Nike hefur þó ekki tekið vel í þessa hugmynd hans. Ferðlagið byrjar í New York þar sem hann heimsækir fyrst Knicks og svo New Jersey Nets, þá fer hann til Chicago og ákveður síðan milli þess að heimsækja Heat-liðið í Miami eða að fara til Clippers í Los Angeles. James mun síðan enda þessa sirkusferð í Cleveland. Það má búast við miklu fjölda fólks á hverjum stað og fjölmiðlarnir munu elta hann út um allt. Þetta verður því eitthvað fyrir egóið hjá LeBron James
NBA Mest lesið Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Íslenski boltinn Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Körfubolti „Algjör óþarfi fyrir dómarann að vera búa til svona úlfalda úr mýflugu“ Sport Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli Íslenski boltinn „Meira sem að þeir þurfa að hafa áhyggjur af hjá okkur“ Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 4-3 | Bikarþynnka í Vestmannaeyjum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Sjá meira