Endurheimtur á eignasafni Landsbankans aukast Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. ágúst 2010 11:05 Betur gengur að endurheimta eignir úr gamla Landsbankanum. Mynd/ Hari.
Verulegur árangur náðist í auknum endurheimtum á eignasafni Landsbankans á öðrum ársfjórðungi. Aukningin var um 64 milljarðar króna í erlendum myntum, eða sem nemur um 6%. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsbanka Íslands vegna kröfuhafafundar sem fram fer í dag. Þar kemur fram að langstærstur hluti eignasafnisins er erlendis og því gefi fjárhæðir í erlendum myntum raunhæfan samanburð á virðisaukningu þess. Vegna mikillar hækkunar gengis íslensku krónunnar á tímabilinu séu endurheimtur í þeirri mynt áætlaðar svipaðar og á fyrsta ársfjórðungi, eða um 89 af hundraði. Ef ekki er tekið tillit til gengisáhrifa væri endurheimtuhlutfallið 93%. Meginástæðan fyrir hækkandi endurheimtum eru samningar sem gerðir hafa veirð á tímabilinu. Skiptir þar mestu samningar um eignir í dótturfélagi bankans í Lúxemborg, en einnig samningar við Björgólf Thor Björgólfsson og fyrirtæki tengd honum, og fleiri samningar. Með samningunum hefur tekist að undirbyggja eignarsafnið betur og treysta grundvöll þess. Með bættri stöðu þess dregur úr óvissu, meiri stöðugleiki skapast og möguleikar aukast á bættum endurheimtum í framtíðinni. Eins og fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær eru tvö skaðabótamál slitastjórnar Landsbankans gegn fyrrverandi stjórnendum bankans á leið til dómstóla. Skaðabótakröfurnar í málunum skipta tugum milljarða. Þá eru fleiri málshöfðanir í farvatninu. Samkvæmt fréttatilkynningu Landsbankans er þess vænst að þessi mál komist fyrir dómstóla hér á landi í haust eða fyrri part vetrar.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira