Greining: Spáir því að verðbólgan hækki í 7,9% 13. janúar 2010 10:35
Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,9% í janúar. Gangi spáin eftir hækkar verðbólga úr 7,5% í 7,9%. Helsta ástæða hækkunarinnar er skattbreytingar, en auk þess munu, eins og jafnan í janúarmánuði, togast á hækkunaráhrif af áramótaendurskoðun gjaldskráa og lækkunaráhrif vegna útsala.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að um nýliðin áramót hækkaði efra þrep virðisaukaskatts úr 24,5% í 25,5%, sem að öðru jöfnu veldur 0,8% hækkun á útsöluverði vara í þessu skattþrepi.Þá hækkaði bensín- og olíugjald rétt fyrir jólin, og um áramót hækkaði áfengis- og tóbaksgjald um 10% auk þess sem nýjar álögur í formi orkuskatts á rafmagn og heitt vatn og kolefnisgjalds á eldsneyti litu þá dagsins ljós. Þessar breytingar munu að mestu leyti koma fram í verðmælingu janúarmánaðar og gerir greiningin ráð fyrir að þær vegi til u.þ.b. 1% hækkunar VNV í mánuðinum. Í febrúar má svo vænta 0,1-0,2% hækkunaráhrifa á VNV vegna þessa.„Við gerum ráð fyrir að verðlækkun á fötum og skóm vegna útsala hafi áhrif til 0,4% lækkunar VNV í mánuðinum, og er það í takti við undanfarin ár. Auk þess munu útsölur halda aftur af verðhækkun í vöruflokkum á borð við heimilisbúnað og raftæki af ýmsu tagi," segir í Morgunkorninu.„Þá eru vísbendingar um að húsnæðisverð lækki nú öllu hraðar en undanfarna mánuði, og gerum við ráð fyrir að lækkun reiknaðrar húsaleigu muni vega til 0,15% lækkunar VNV að þessu sinni. Hins vegar eru gjaldskrár ýmissa þjónustuaðila, sér í lagi hjá hinu opinbera, gjarnan hækkaðar á nýju ári og gerum við ráð fyrir að sú verði einnig raunin nú. Loks er enn til staðar einhver hækkunarþrýstingur vegna gengishruns krónu árið 2008, enda hefur veltuhraði ýmissa vörutegunda sem teljast til varanlegra neysluvara minnkað mikið eftir hrunið á haustdögum það ár." Gangi spá greiningarinnar eftir mun VNV samtals hækka um 2,2% á fyrsta fjórðungi ársins. Þar af eru raunar 1,2-1,3% vegna hækkunar opinberra gjalda. Í febrúar og mars munu útsölulok þrýsta upp VNV auk þess sem áhrifa af skattahækkunum mun áfram gæta í einhverjum mæli.„Mæld verðbólga mun því aukast jafnt og þétt og ná hámarki í 9,4% í mars samkvæmt spánni. Í kjölfarið teljum við hins vegar að draga muni úr verðbólgunni að nýju og spáum við því að hún verði 4% í lok ársins,"segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira