Robert Wade: Icesave klassískt dæmi fyrir sáttasemjara 13. janúar 2010 09:06
Íslandsvinurinn og prófessorinn Robert H. Wade segir að Icesave deilan sé klassískt dæmi um aðkomu þriðja aðila, eða sáttasemjara, til að finna ásættanlega lausn í málinu. Þetta kemur fram í lesendabréfi sem Wade skrifar og birt er í Financial Times í dag en Wade er hagfræðiprófessor við London School of Economics. Hann segir að fyrsta skrefið sé að viðurkenna að sökin liggi jafnmikið hjá Bretum og Hollendingum sem Íslendingum í málinu. Í bréfi sínu tekur Wade sem dæmi að hollenski seðlabankinn hafi leyft opnun Icesave reikninga þar í landi seinnipart apríl árið 2008. Þar með hafi bankinn horft framhjá skýrslu Bankaeftirlitsnefndarinnar í Basel (Committee on Bank Supervision) frá því í febrúar sama ár þar sem nýjar reglur voru settar fram um ábyrgðina á rekstri útibúa í gistilöndum. Áður voru þessi útibú á ábyrgð heimalands síns en með hinum nýju reglum færðist ábyrgin yfir á eftirlit og regluverk þess lands sem útibúin starfa í. „Seðlabanki Hollands hefði verið mun varkárari ef hann hefði rannsakaða málið eins og þessarar nýju reglur sögðu að gera ætti," segir Wade. Hvað Íslendinga varðar voru það klár mistök af hálfu íslenskra stjórnvalda að lofa breska fjármálaeftirlitinu (FSA) því á miðju ári 2008 að þau myndu tryggja nægt fjármagn til tryggingarsjóðs innistæðueigenda. Þetta loforð kom í kjölfar þess að FSA ætlaði að loka Icesave reikningunum í Bretlandi. Að mati Wade voru það svo mistök af hálfu FSA að taka mark á þessu loforði íslenskra stjórnvalda. Wade segir að Icesave sé klassískt dæmi um aðkomu þriðja aðila til sáttagerðar. Hann segir ennfremur að sáttasemjarinn ætti að vera stjórnmálamaður eða fyrrum stjórnmálamaður frá Evrópuríki. Hann á að vera virtur fyrir dómgreind og heiðarleika og hann á að geta sótt sér stuðning innan ESB.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Sjá meira