Slitastjórn SPRON þráast við að afhenda gögn um stofnfjárbréf Sigríður Mogensen skrifar 24. febrúar 2010 12:03
Níu mánuðum eftir að lögmaður óskaði eftir ítarlegum gögnum frá slitastjórn SPRON um viðskipti með stofnfjárbréf frá sumrinu 2007 hefur slitastjórnin ekki enn afhent gögnin.Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur til rannsóknar nokkur mál tengd sölu stjórnarmanna og tengdra aðila á stofnfjárbréfum í SPRON sumarið 2007. Grunur leikur á innherjaviðskiptum. Bréfin eru verðlaus í dag og sitja kaupendur bréfanna því eftir með sárt ennið.Grímur Sigurðsson, hæstaréttarlögmaður rekur mál fyrir nokkra af kaupendum bréfanna. Fyrir níu mánuðum óskaði hann eftir ítarlegum gögnum frá slitastjórn SPRON um einstök viðskipti frá sumrinu 2007 þar sem umbjóðendur hans keyptu bréf af fruminnherjum sparisjóðsins."Það sem okkur vantar sárlega eru gögn um einstök viðskipti," segir Grímur. „Við þurfum að vita hvernig viðskiptin áttu sér stað, hvaða samskipti áttu sér stað og hvernig tilboð seljendanna berast inn á stofnfjármarkaðinn. Við þurfum að fá upptökur af símtölum, afrit af tölvupóstum og allt annað sem getur upplýst um þetta mál"Slitastjórn SPRON hefur hins vegar ekki enn afhent gögnin. Þær upplýsingar hafi fengist frá slitastjórn SPRON að gögnin séu föst inni hjá tölvufyrirtæki út í bæ og þurfi slitastjórnin að greiða fyrir aðgang að þeim.Grímur segir að væntanlega muni slitastjórnin leysa út þessi gögn enda þurfi hún þau til að geta gert upp þrotabúið.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira