Fengur hefur endurvinnslu á timbri hérlendis 16. nóvember 2010 11:20
Endurvinnslan Fengur ehf. framleiðir spón fyrir íslenskan landbúnað og vill með því leggja sitt af mörkum við að efla innlenda framleiðslu og nýsköpun til að flýta fyrir bata efnahagslífsins, að því er segir í tilkynningu. Áætlað er að framleiða um 3000-4000 tonn á ári fyrir innlendan markað. Við endurvinnsluna er hrein orka, jarðgufa, við framleiðsluna. Þá er verið að búa til vöru úr endurvinnanlegu hráefni, með því að nýta timbur sem áður var að mestu urðað í jörðu eða notað til brennslu í stóriðju. Spónninn er notaður til undirburðar fyrir hesta og annan búfénað hér á landi, en í dag nemur innflutningur á undirburði 300 - 500 milljónum króna á ári. Spara má umtalsverðar fjárhæðir í gjaldeyri með því að framleiða spón hér á landi. Endurvinnslan er staðsett í Hveragerði þar sem áhersla er lögð á vistvæna orkugjafa til framleiðslunnar, eins og jarðgufuna. Nú þegar hafa skapast nokkur ný störf og vonir standa til að þeim fjölgi í allt að tíu á næstu misserum. Töluvert magn af vörubrettum og öðru timbri fellur til hérlendis á hverju ári. Með tilkomu Fengs ehf. verður nýtanlegt timbur endurunnið í auknum mæli. Spónninn hefur fengið mjög góða dóma hjá fagaðilum og er ódýrari en innfluttur spónn. Timbrið býður einnig upp á mikla möguleika á framleiðslu á fleiri vörum. Fengur ehf. hefur þegar áformað frekari vöruþróun sem ætla má að geti skapað gjaldeyristekjur í nánustu framtíð. Fengur ehf. var stofnað 2009 af Sigurði G. Halldórssyni. Starfsmenn félagsins eru ákveðnir í að ná árangri og eru bjartsýnir á framtíðina.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Sjá meira