Viðskipti innlent

Fengur hefur endurvinnslu á timbri hérlendis

Endurvinnslan Fengur ehf. framleiðir spón fyrir íslenskan landbúnað og vill með því leggja sitt af mörkum við að efla innlenda framleiðslu og nýsköpun til að flýta fyrir bata efnahagslífsins, að því er segir í tilkynningu. Áætlað er að framleiða um 3000-4000 tonn á ári fyrir innlendan markað.

Við endurvinnsluna er hrein orka, jarðgufa, við framleiðsluna. Þá er verið að búa til vöru úr endurvinnanlegu hráefni, með því að nýta timbur sem áður var að mestu urðað í jörðu eða notað til brennslu í stóriðju.

Spónninn er notaður til undirburðar fyrir hesta og annan búfénað hér á landi, en í dag nemur innflutningur á undirburði 300 - 500 milljónum króna á ári. Spara má umtalsverðar fjárhæðir í gjaldeyri með því að framleiða spón hér á landi.

Endurvinnslan er staðsett í Hveragerði þar sem áhersla er lögð á vistvæna orkugjafa til framleiðslunnar, eins og jarðgufuna. Nú þegar hafa skapast nokkur ný störf og vonir standa til að þeim fjölgi í allt að tíu á næstu misserum.

Töluvert magn af vörubrettum og öðru timbri fellur til hérlendis á hverju ári. Með tilkomu Fengs ehf. verður nýtanlegt timbur endurunnið í auknum mæli. Spónninn hefur fengið mjög góða dóma hjá fagaðilum og er ódýrari en innfluttur spónn. Timbrið býður einnig upp á mikla möguleika á framleiðslu á fleiri vörum. Fengur ehf. hefur þegar áformað frekari vöruþróun sem ætla má að geti skapað gjaldeyristekjur í nánustu framtíð.

Fengur ehf. var stofnað 2009 af Sigurði G. Halldórssyni. Starfsmenn félagsins eru ákveðnir í að ná árangri og eru bjartsýnir á framtíðina.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×