Viðskipti innlent

Landsbankinn spáir 0,75% lækkun stýrivaxta

Hagfræðideild Landsbankans spáir því að Peningastefnunefnd Seðlabankans muni lækka stýrivexti um 0,75 prósentustig á vaxtadegi á morgun. Þeir verða þá 6,25%

Að mati Hagfræðideildar Landsbankans er ekki líklegt að Peningastefnunefndin verði jafn djarftæk og í ágúst, þegar hún afréð að lækka stýrivextina um 1 prósentustig, meðal annars vegna þess að nú styttist óðum í að efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda verði tekin fyrir í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Líklegra er talið að nefndin verði varkár í ákvörðun sinni og muni gengi krónunnar vega þar þungt.

Hagfræðideild Landsbankans bendir á að lokinni þriðju endurskoðun AGS á efnahagsáætlun stjórnvalda síðar í mánuðinum séu allar forsendur sem settar voru fram fyrir því að næsta skref verði stigið í afléttingu gjaldeyrishaftanna uppfylltar. Athyglisvert verði að fylgjast með hvort breytingar verði á fjármögnun efnahagsáætlunar þar sem flest bendir til þess að lítið hafi gerst í Icesave-viðræðunum.

Fjármögnun efnahagsáætlunarinnar og þar með umfang gjaldeyrisforðans, mun hafa talsverð áhrif á það hvernig afléttingu haftanna verður háttað segir Hagfræðideild Landsbankans í greiningu sinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×