Úttekt að undirlagi sjóðanna í gangi 24. september 2010 06:15 Atli Gíslason
Að öllu óbreyttu gætu tvær úttektir eða rannsóknir farið fram samhliða á starfsemi lífeyrissjóðanna í landinu. Í þingsályktun þingmannanefndarinnar, undir formennsku Atla Gíslasonar, er lagt til að starfsemi lífeyrissjóðanna verði rannsökuð. Nú þegar er hafin vinna við að taka út starfsemi þeirra. Fjárfestingarstefna, ákvarðanataka og lagalegt umhverfi í aðdraganda bankahrunsins er til skoðunar. Sú úttekt er gerð að frumkvæði Landssamtaka lífeyrissjóða sem fengu ríkissáttasemjara til að skipa nefnd til verksins. Valdist Hrafn Bragason, fyrrverandi hæstaréttardómari, til formennsku. Útlit er fyrir að endanleg ákvörðun um þingrannsókn verði ekki tekin fyrr en niðurstöður úttektarinnar liggja fyrir. Í samtali við Fréttablaðið sagði Atli Gíslason það vera sína skoðun að rétt væri að skoða þær og meta í framhaldinu hvort tilefni sé til rannsóknar á vegum þingsins. Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, segir að upphaflega hafi verið stefnt að verklokum úttektarnefndarinnar í desember en störf hennar kunni að dragast fram á nýtt ár. Kvaðst hann ekki gera athugasemdir við að þingið láti rannsaka lífeyrissjóðina en í kjölfar útgáfu skýrslu þingmannanefndarinnar hafi henni verið bent á að sjálfstæð og óháð úttekt að undirlagi sjóðanna sjálfra væri þegar hafin. - bþs
Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira