Greining: Kaupmáttur launa lækkar áfram til ársloka 8. mars 2010 12:41
Greining Íslandsbanka telur að raunlaun muni halda áfram að lækka fram eftir þessu ári. Verðbólga er enn nokkur, og mun hún fyrst hjaðna fyrir alvöru þegar kemur fram á vorið.„Á sama tíma eru ekki frekari samningsbundnar launahækkanir í farvatninu fyrr en um mitt árið, auk þess sem launaskrið er nú með minnsta móti vegna mikils slaka á vinnumarkaði. Ef verðbólguþróun verður hins vegar í takti við spár okkar má búast við að raunlaun taki að hækka að nýju á næsta ári," segir í Morgunkorni greiningarinnar þar sem fjallað er um málið og vitnað í nýjar tölur Hagstofunnar frá því í morgun.Laun hækkuðu um 1,6% á milli þriðja og fjórða ársfjórðungs síðasta árs. Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 1,9% frá fyrri ársfjórðungi og laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 0,8% á sama tímabili. Þetta er meiri talsvert meiri hækkun en sést hefur undanfarna ársfjórðunga sem rekja má til kjarasamninga sem tóku gildi á tímabilinu.Frá fyrri ársfjórðungi hækkuðu laun sérfræðinga minnst eða um 1,1%. Mest hækkuðu laun þjónustu-,sölu-, og afgreiðslufólks á sama tímabili eða um 2,7%. Raunlaun lækkuðu hinsvegar á sama tímabili en kaupmáttur launa dróst saman um tæplega 1% á fjórða ársfjórðungi síðasta árs frá fyrri fjórðungi sama árs.Þá voru regluleg laun að jafnaði 3,2% hærri á fjórða ársfjórðungi síðasta árs en á sama ársfjórðungi árið á undan. Kaupmáttur launa rýrnaði um 5% á sama tímabili. Hefur kaupmáttur launa þá lækkað um tæplega 12% frá því að hann náði hámarki í síðustu uppsveiflu á fjórða ársfjórðungi 2007.Atvinnuleysi á 4. ársfjórðungi síðasta árs var 6,7% samanborið við 4% atvinnuleysi á sama ársfjórðungi árið 2008 og 1,9% atvinnuleysi á sama tímabili 2007. Hagstofan mælir atvinnuleysi með nokkuð öðrum hætti en Vinnumálastofnun, og skýrir það hvers vegna atvinnuleysishlutfallið mælist talsvert lægra í vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar en í mánaðarlegum tölum Vinnumálastofnunar yfir skráð atvinnuleysi.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira