Vonar að niðurstaðan gagnist í samningum 25. september 2010 08:00
Hreiðar Már Sigurðsson vonar að niðurstaðan úr rannsókn Breska fjármálaeftirlitsins (FSA) á starfsemi Kaupþings Singer & Friedlander í aðdraganda hrunsins geti nýst í samningaviðræðum stjórnvalda um uppgjör hrunsins. Þetta kemur fram í bréfi sem Hreiðar Már Sigurðsson hefur sent til ráðamanna hérlendis í tilefni þess að rannsókninni er lokið. Bréfið var póstlagt á þriðjudag í Lúxemborg og er stílað á forsætisráðherra, fjármálaráðherra, efnahags- og viðskiptaráðherra, forstjóra Fjármálaeftirlitsins og sérstakan saksóknara. Í bréfinu nefnir Hreiðar að ákvarðanir breskra stjórnvalda um að bjarga ekki bankanum frá hruni í október 2008 hafi haft „bein og mikil áhrif á þróun mála hér á landi." Haldið hafi verið fram, meðal annars af Gordon Brown í samtali við Geir H. Haarde, að miklir fjármunir, 500 til 1.500 milljónir punda, hefðu verið fluttir úr bankanum til Íslands dagana fyrir hrun. Hreiðar segir þá spurningu áleitna hvort bankinn hafi þurft að fara í þrot og af hverju hann fékk ekki aðstoð breska ríkisins. Rannsókn FSA leiði í ljós að ástæðuna sé ekki að finna í lögbrotum eða misferli stjórnenda bankans. Von hans sé því að sú niðurstaða geti nýst stjórnvöldum í samningaviðræðum um uppgjör hrunsins. Hreiðar Már gagnrýnir íslenska Fjármálaeftirlitið (FME) harðlega í bréfi sínu og furðar sig á því að enginn starfsmaður þess hafi rætt við hann svo mikið sem einu sinni frá falli Kaupþings. Til samanburðar hafi FSA tekið fjölda skýrslna af öllum helstu stjórnendum Kaupþings Singer & Friedlander. Það gefi ástæðu til að ætla að niðurstöður þess séu vel ígrundaðar og faglegar, á meðan svo virðist sem ályktanir FME um meinta glæpi stjórnenda Kaupþings séu alrangar og að eftirlitið verði aldrei trúverðugt. Þá hafi ekkert lekið út um rannsókn FSA, ólíkt því sem verið hefur hjá FME. Til dæmis hafi einungis liðið nokkrir klukkutímar frá því að FME fékk lánabók Kaupþings og FIH í hendur á rafrænu formi þar til hún var komin á vefinn Wikileaks. Hreiðar segist vona að þessi ábending hans veki íslensk stjórnvöld til umhugsunar og aðgerða í þessum efnum. Kaupþing er þó enn til rannsóknar á Bretlandseyjum. Serious Fraud Office, sem rannsakar glæpi í bankakerfinu, skoðar enn þátt Kaupþings í meintri svika-fléttu með hluti í íþróttavörukeðjunni JJB Sports, auk þess sem starfsmenn embættisins hafa verið sérstökum saksóknara til aðstoðar við hans rannsóknir. stigur@frettabladid.is
Mest lesið „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Sjá meira