Álverðið tekur kipp upp á við fyrir jólin 23. desember 2010 10:23
Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað um rúmlega 100 dollara á tonnið í þessari viku og stendur nú í 2.455 dollurum á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga. Er verðið því nálægt hámarki ársins. Heimsmarkaðsverð á áli í ár náði hæst í tæpa 2.500 dollara á tonnið í apríl s.l. Hafði verðið þá ekki verið hærra síðan sumarið 2008. Síðan hrapaði verðið á skömmu tíma niður í rúmlega 1.850 dollara í júní. Frá þeim tíma hefur verðið síðan farið stighækkandi, með litlum niðursveiflum inn á milli eins og sjá má á línuritinu með þessari frétt en línutritið er tekið af heimasíðu LME. Það er athyglisvert að hópur 24 sérfræðinga sem Bloomberg leitaði álits hjá skömmu fyrir áramótin síðustu taldi að álverðið á þessu ári myndi verða 1.885 dollarar á tonnið á markaðinum í London (LME) að meðaltali. Í raun liggur meðalverð ársins í kringum 2.200 dollara á þessum markaði.
Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira