Starfsmannalán Kaupþings færð á núlli yfir í Arion 18. febrúar 2010 09:06
Þegar Kaupþing féll námu lánveitingar bankans til 130 starfsmanna hans vegna hlutabréfakaupa 47,3 milljörðum króna. Þau lán voru færð yfir til Arion. Heimildir Viðskiptablaðsins herma að þau hafi verið færð þangað á 0 krónur.Fjallað er um málið í Viðskiptablaðnu í dag. Þar segir að stjórn Kaupþings ákvað tveimur vikum áður en bankinn hrundi að fella niður allar persónulegar ábyrgðir starfsmannanna vegna lánanna. Flest lánin höfðu verið veitt með þeim skilmálum að persónuleg ábyrgð starfsmannanna væri takmörkuð við tíu prósent af höfuðstól skuldarinnar, eða um 10,5 milljarða króna.Tæpur helmingur þeirrar niðurfellingar var á ábyrgðum sjö æðstu stjórnenda bankans. Hluthafar Kaupþings hafa kært niðurfellinguna til sérstaks saksóknara. Á meðan málið er þar til skoðunar ætlar Arion ekki að taka ákvörðun um hvort lánin verði afskrifuð eða ekki.Ríkisskattstjóri hefur auk þess verið að vinna að formlegu áliti um hvort niðurfellingar á lánunum séu mögulega skattskyldar. Það myndi skapa mjög háa skattaskuld hjá þeim starfsmönnum Kaupþings sem fengu slíkar niðurfellingar.Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins ætlaði embætti Ríkisskattstjóra að klára álit sitt fyrir áramót en það hefur dregist. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir álitið væntanlegt.
Mest lesið Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Sjá meira