Misdýr uppgjör 18. febrúar 2010 05:00
Í samanburði við uppgjör á erlendum bönkum þykir rekstrarkostnaður íslensku skilanefndanna lágur sem hlutfall af eignum í stýringu. Þeir sem rætt hefur verið við vegna málsins telja að það skrifist á að hér hafi FME tilnefnt marga einstaklinga frá nokkrum lögfræðiskrifstofum og endurskoðendafyrirtækjum í skilanefndir og slitastjórnir, sem greiði þeim laun. Erlendis hafi ákveðin fyrirtæki verið fengin til að stýra uppgjörum fallinna banka. Breska endurskoðendaskrifstofan Ernst & Young vinnur við uppgjör Kaupthing Singer & Friedlander (KSF) í London en PricewaterhouseCoopers (PwC) sér um uppgjör bandaríska fjárfestingarbankans Lehman Brothers í Evrópu. n Laun skiptastjóra KSF og teymis hans námu 29 milljónum punda frá falli bankans í október 2008 fram til október í fyrra, að því er fram kemur í skýrslu til kröfuhafa. Þetta jafngildir sex milljörðum íslenskra króna. Launakostnaður starfsfólks skiptastjóra nam rúmri 31 milljón punda, eða 6,3 milljörðum króna, á tímabilinu. Seint í október í fyrra hafði PwC fengið 238 milljónir dala í laun og þóknanir vegna vinnu við uppgjör Lehman Brothers í Evrópu, að því er fram kemur í skýrslu endurskoðendafyrirtækisins. Þetta jafngildir tæpum þrjátíu milljörðum íslenskra króna á þávirði. Um þrjú hundruð manns unnu fyrir PwC við uppgjörið. n Dæmi eru um að lögfræðiskrifstofur og endurskoðendafyrirtæki hér rukki 25 þúsund krónur fyrir hverja vinnustund skilanefnda og slitastjórna. Samkvæmt skýrslu til kröfuhafa KSF taka bresk fyrirtæki rúm 688 pund á tímann, eða 138 þúsund krónur, fyrir vinnu meðeigenda lögfræðiskrifstofa. Sérfræðingar eru seldir út á 460 pund á tímann og aðrir sérfræðingar á 267 pund. Þetta gera allt upp að 93 þúsund krónum. Aðstoðarfólk er gert út fyrir 158 pund á tímann, jafnvirði 30 þúsund króna.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Fleiri fréttir Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Sjá meira