Síminn telur sig ekki hafa brotið lög 22. maí 2010 12:16 Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans. Mynd/Arnþór Birkisson
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, segir að fyrirtækið hafi talið að þær aðgerðir þegar Síminn útbjó lista með upplýsingum um mörg þúsund viðskiptavina símafyrirtækisins Nova væru í samræmi við gildandi lög og reglur. Samkeppniseftirlitið telur sennilegt að Síminn hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína á fjarskiptamarkaði og brotið samkeppnislög. Síminn útbjó lista með ítarlegum upplýsingum um mörg þúsund viðskiptavina Nova og reyndi með þær upplýsingar að vopni að ná viðskiptavinum frá Nova til sín. Þetta kemur fram í bráðabirgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem birt var í gær. Eftirlitið telur að Síminn hafi gripið til umfangsmikilla ólögmætra aðgerða í því skyni að ná mikilvægum viðskiptavinum frá símafyrirtækinu Nova með verðlækkunum og óeðlilegri notkun á trúnaðarupplýsingum um símnotkun viðskiptavina Nova. Hafi fyrirtækið útbúið lista sem hefur að geyma sundurgreinanlegar upplýsingar um mörg þúsund viðskiptavina Nova. Umræddir listar geymi ekki aðeins upplýsingar um símanúmer og nöfn viðkomandi viðskiptavina Nova heldur líka kennitölur, heimilisföng og í mörgum tilfellum starfsheiti þeirra. Þá safnaði Síminn upplýsingum um fjölda símtala hvers og eins, lengd þeirra í mínútum eða sekúndum og lengd meðalsímtals. Á grundvelli þessara upplýsinga hafi Síminn geta beitt sér gagnvart mikilvægum viðskiptavinum Nova. Sævar Freyr segir að Síminn hafi talið að þessar aðgerðir væru í samræmi við gildandi lög og reglur. Samkvæmt bráðabirgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins leiki hins vegar vafi á því hvort Símanum sé yfirhöfuð heimilt að nýta sér slíkar upplýsingar á þennan hátt. Sævar segir mikilvægt að þessi mál séu á hreinu og að Síminn muni í framhaldinu funda með Póst- og fjarskiptastofnun til þess að fá úr þessu skorið á óyggjandi hátt. Málið er enn til rannsóknar og verður tekin lokaákvörðun þegar rannsókn lýkur.
Tengdar fréttir Líklegt að Síminn hafi brotið samkeppnislög Samkeppniseftirlitið telur sennilegt að Síminn hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína og þannig gerst brotlegt gagnvart samkeppnislögum. Þetta kemur fram í bráðabirgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem birt var í dag. 21. maí 2010 16:31 Mest lesið Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Sjá meira
Líklegt að Síminn hafi brotið samkeppnislög Samkeppniseftirlitið telur sennilegt að Síminn hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína og þannig gerst brotlegt gagnvart samkeppnislögum. Þetta kemur fram í bráðabirgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem birt var í dag. 21. maí 2010 16:31