Viðskipti innlent

Dæmalaus erfðasynd frá einkavæðingu bankanna

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að ríkisábyrgðir þær sem meirihluti fjárlaganefndar leggur til að teknar verði yfir frá gömlu bönkunum sé dæmalaus erfðasynd frá einkavæðingu bankanna á sínum tíma.

Þetta kom fram í máli fjármálaráðherra á fundi hjá Vinstri grænum á Akureyri í gærkvöldi sem greint er frá á vefsíðu RUV. Ábyrgðir þær sem hér um ræðir nema tæplega 24 milljörðum kr. en megnið af þeim lá inni hjá Landsbankanum eða ríflega 22 milljarðar kr. Af þeirri upphæð eru tæpir 14 milljarðar kr. vegna Lánasjóðs landbúnaðarins.

Steingrímur segir þetta dæmalausa erfðasynd frá einkavæðingu bankanna. Að bankarnir hafi verið einkavæddir með ríkisábyrgðum sem fylgt hafi yfir í einkabankana og vaknað til lífsins aftur þegar bankarnir urðu gjaldþrota í hruninu haustið 2008.

„Það verði ekki upp á þá snilld logið sem sýnd hafi verið við einkavæðingu bankanna. Nú fái ríkið þetta í fangið aftur, því þessar gömlu ríkisábyrgðir vakni upp þegar gömlu bankarnir fari," hefur RUV eftir Steingrími.

„Nú standi menn frammi fyrir því að þarna sé kominn skellur á ríkið, bein afleiðing af bankahruninu, og einkavæðingu bankanna upp á yfir 20 milljarða króna".




Tengdar fréttir

Afskrifa á tæpa 14 milljarða af lánum landbúnaðarins

Til stendur að afskrifa 13,8 milljarða vegna Lánasjóðs landbúnaðarins samkvæmt framhaldsnefndaráliti um fjáraukalög fyrir árið 2010. Sjóðurinn var vistaður hjá Landsbankanum en alls er ætlunin að afskrifa ýmsar skuldbindingar ríkisins hjá Landsbankanum um rúma 22 milljarða kr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×