Afskrifa á tæpa 14 milljarða af lánum landbúnaðarins 30. nóvember 2010 15:45
Til stendur að afskrifa 13,8 milljarða vegna Lánasjóðs landbúnaðarins samkvæmt framhaldsnefndaráliti um fjáraukalög fyrir árið 2010. Sjóðurinn var vistaður hjá Landsbankanum en alls er ætlunin að afskrifa ýmsar skuldbindingar ríkisins hjá Landsbankanum um rúma 22 milljarða kr. Í þingskjali um málið undir liðnum fjármálaráðuneytið segir; „Lagt er til að í frumvarpinu verði gert ráð fyrir 23,7 milljarða kr. fjárheimild vegna gjaldfærslu á ríkisábyrgðum á lánum sem ríkissjóður mun taka yfir vegna föllnu bankanna. Er það til viðbótar við liðlega 1 milljarðs kr. hækkun í þessum útgjöldum sem þegar hefur verið gert ráð fyrir í frumvarpinu með tillögu við 2. umræðu. Ríkissjóður mun eftir sem áður gera kröfur í þrotabú bankanna um endurheimtur. Þar af eru 22,5 milljarðar kr. vegna gjaldfærslu á uppreiknuðum höfuðstól þessara ábyrgða sem gert er ráð fyrir að gera þurfi í ríkisreikning ársins 2010." Síðan segir að þegar ríkisviðskiptabankarnir voru gerðir að hlutafélögum á sínum tíma hvíldu á þeim ýmsar skuldbindingar vegna skuldabréfa með ríkisábyrgð sem þá höfðu verið útgefin. Ríkið ber því enn ábyrgð á þeim skuldbindingum. „Hér er um að ræða Útvegsbanka Íslands sem Íslandsbanki yfirtók gegnum Fjárfestingarbanka atvinnulífsins og svo Landsbanka Íslands sem yfirtók skuldbindingar Lánasjóðs landbúnaðarins á sínum tíma. Nær öll lánin eru hjá Landsbankanum, 22,1 milljarður kr., og þar af er stærsti hlutinn vegna Lánasjóðs landbúnaðarins, 13,8 milljarðar kr.," segir í skjalinu. Björn Valur Gíslason þingmaður Vinstri grænna í fjárlaganefnd segir að í hinu „mikla óðagoti" sem fylgdi einkavæðingu Landsbankans á sínum tíma tók Björgólfur Guðmundsson og félagar Lánasjóð landbúnaðarins með í kaupunum en hinsvegar hafi „gleymst" að aflétta ríkisábyrgðinni á þeim tíma. Skuldbindingin lenti því á ríkissjóði þegar Landsbankinn féll haustið 2008.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira