Lénið sex.com sett á uppboð 9. mars 2010 09:47
Klám selur og þá sérstaklega á netinu. Það vita eigendur verðmætasta lénsins á netinu, sex.com, og því hafa þeir ákveðið að setja lénið á uppboð. Uppboðið hefst á lágmarksboði upp á eina milljón dollara eða um 128 milljónir kr. en það verður haldið í næstu viku.Eigendi sex.com er bandaríska fyrirtækið DOM Partners og þeir munu hafa borgað 14 milljónir dollara eða tæpan 1,8 milljarð kr. fyrir lénið árið 2006, að því er segir í frétt á börsen.dk um málið. Þetta er hæsta verð sem nokkurn tíma hefur verið borgað fyrir lén á netinu. Reiknað er með að það met verði slegið í næstu viku.Sex.com er ekki léleg fjárfesting fyrir eigenda þess. Samkvæmt bók sem skrifuð var um sex.com árið 2008 munu tekjur af léninu hafa numið hátt í 2 milljónum kr. á dag á tímabili. Sex.com var upphaflega skráð árið 1994 í eigu Gary Kremen stofnanda stefnumótasíðunnar Match.com.Samkvæmt bandarísku sjónvarpsstöðinni ABC er lénið Fund.com það næstdýrasta í heiminum en það er talið tæpega 10 milljón dollara virði. Í þriðja sæti er Porn.com sem talið er um 9 milljón dollara virði og í þriðja sæti er Diamonds.com sem talið er um 8 milljón dollara virði.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira