Spánverjar fjölmenna til Íslands með skemmtiferðaskipi 9. mars 2010 15:29
Von er á 3.600 spænskum ferðamönnum til Íslands í júlí og ágúst en þá kemur spánska skemmtiferðaskipið Grand Mistral tvisvar sinnum til Reykjavíkur og stoppar í fyrra skiptið í 3 sólarhringa og síðan hefur skipið tveggja daga viðdvöl.Fjallað er um málið á vefsíðu Faxaflóahöfnum. Þar segir að farþegar með skipinu séu eingöngu Spánverjar og þetta sé í fyrsta skipti sem Ísland er markaðssett á Spáni sérstaklega fyrir skemmtiferðaskip.Ferðatilhögun er þannig að skipið kemur frá Evrópu með 1200 farþega sem fara af skipinu í Reykjavík og farþegar koma til Reykjavíkur flugleiðina frá Barcelona og Madrid og fara um borð hér. Síðan fer skipið í 14 daga siglingu til Grænlands og snýr aftur og tekur þá við öðrum hóp frá Spáni og skilar af sér þeim sem komu frá Grænlandi og heldur áfram með nýja farþega til Evrópu.Samtals ferðast 3600 farþegar með skipinu í Íslandsferðinni og verður þeim að sjálfsögðu boðið upp á ýmsar ferðir og afþreyingu á meðan á dvölinni á Íslandi stendur.Í farþegaskiptum af þessari stærðargráðu þarf nánast að setja upp aðstöðu fyrir farþega á svipaðan hátt og gert er á flugvöllum. Farþegar koma með langferðabílum af flugvelli í húsnæði þar sem innritun fer fram og þar sem slík aðstaða er ekki fyrir hendi á hafnarbakkanum verður að finna hentugan stað í nágrenni Sundahafnar.Að lokinni innritun verða farþegarnir fluttir að skipshlið en farangur fluttur beint úr flugi í skipið. Með þessum áfanga er verið að stíga nýtt skref í komum skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur og vonast er til að þessi þróun haldi áfram og verði viðvarandi.Grand Mistral er tæplega 50.000 brúttótonna skip og tekur 1200 farþega. Eigandi skipsins er Iberocruceros, sem er með höfuðstöðvar sínar í Madrid.
Mest lesið Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Viðskipti innlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Fleiri fréttir Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Sjá meira