Eignarýrnun/verðbólga eyðir allri millistéttinni á Íslandi 25. október 2010 11:01
Innlend verðbólga og eignarýrnun mun að öllum líkindum eyða alveg allri millistétt Íslands. Landinu er haldið á floti af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, tæknilegum gjaldþrotum og gjaldeyrishöftum. Þetta kemur fram í grein sem hagfræðingurinn Dian L. Chu skrifar um hvort Bandaríkin muni fylgja í kjölfar Íslands hvað fasteignakreppu varðar. Dian er dálkahöfundur um efnahagsmál hjá Reuters, USA Today, BusinessWeek og fleiri miðlum. Greinin hefur vakið athygli og er birt á vefsíðum á borð við Market Oracle og benzinga. Dian L. Chu byggir grein sína á tölulegum upplýsingum á Bloomberg fréttaveitunni um íslensk efnahagsmál frá því fyrir hrunið 2008 og fram til dagsins í dag. Dian telur m.a upp það sem hún kallar ógnvekjandi hagtölur. Verðbólgan jókst um 41% frá janúar 2007 og fram til september í ár. Kaupmáttur minnkaði um rúm 20% á síðasta ári. Raunlaun hafa lækkað um rúm 10% frá ársbyrjun til ágúst í ár. Um 63% af húsnæðislánum þjóðarinnar eru vandamál. Um 40% af húseigendum á Íslandi eru tæknilega gjaldþrota. Grein Dian er skrifuð í framhaldi af því sem kallað hefur verið gjaldmiðlastríðið sem nú geysar á alþjóðamarkaði. Margir hagfræðingar í Bandaríkjunum telja að hagkerfið þar í landi muni verða samkeppnishæfara og skapa fleiri störf ef dollaranum verði leyft að lækka gífurlega eða um 50%. „Jæja, lítum á Ísland til að kanna þessa kenningu," segir Dian. „Gjaldmiðill Íslands hefur hrunið um tæp 60% frá því í júlí 2006. Laun hafa einnig lækkað og fyrir utan lán Alþjóðagjaldeyrissjóðins er Íslandi haldið á floti með „tæknilegum gjaldþrotum" og gjaldeyrishöftum," segir Dian. „Þrátt fyrir að gengisfall krónunnar hafi hjálpað útflutningsgreinum landsins (á meðan lánadrottnar voru neyddir til að taka á sig afskriftir) mun innlend verðbólga og eignarýrnun að öllum líkindum eyða alveg allri millistétt landsins."
Mest lesið Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira