Íslandsvinur selur dótakassann sinn Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. mars 2010 19:39 Félagið þarf að losa sig við margar lúxusbifreiðar. Mynd/ AFP.
Vincos, sem er félag í eigu auðjöfursins Vincent Tchenguiz, stendur um þessar mundir í umfangsmiklum niðurskurði eftir að hafa tapað 38 milljónum sterlingspunda, eða 7,2 milljörðum íslenskra króna. Á meðal þeirra úrræða sem gripið er til er að selja bílaflota fyrir 1 milljón sterlingspunda, eða 190 milljónir íslenskra króna. Breska blaðið Daily Telegraph segir að í bílaflotanum séu meðal annars Lamborghini, Aston Martin og Bentley. Blaðið segir að Tchenguiz hafi keypt að minnsta kosti einn bílinn sjálfur. Vincent og Robert bróðir hans auðguðust upphaflega í fasteignaviðskiptum. Bræðurnir voru á meðal stærstu viðskiptavina Kaupþings og fengu á sínum tíma 300 milljarða að láni hjá bankanum. Eftir að bankinn hrundi gerðu þeir hins vegar 400 milljarða króna kröfu í þrotabúið. Talið er líklegt að þeir muni stefna þrotabúinu vegna þeirrar kröfu.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira