Áfram er mikil eftirspurn eftir leiguhúsnæði 10. mars 2010 11:52
Í febrúar síðastliðnum var alls 744 leigusamningum um íbúðarhúsnæði þinglýst sem er fækkun um tæplega 9% frá sama mánuði í fyrra þegar 815 leigusamningum var þinglýst. Eins og kunnugt er hefur sókn í leiguhúsnæði aukist gríðarlega í kjölfar bankahrunsins. Í kjölfarið hefur leigumarkaður hér á landi gjörbreyst og fjöldi þeirra sem leigja frekar en að búa í eigin húsnæði stóraukist. Þessi þróun sést vel á gögnum Fasteignaskrár Íslands en fjöldi þinglýstra leigusamninga í febrúar í ár og í fyrra er meira en helmingi meiri en hann var að meðaltali síðustu 3 árin á undan. Mikil umskipti hafa orðið á íbúðamarkaði hér á landi í kjölfar gjörbreytinga á efnahagsumhverfinu. Leigumarkaðurinn fer ekki varhluta af þessari þróun. Bæði hefur spurn eftir leiguhúsnæði stóraukist m.a. vegna vaxandi atvinnuleysis, kaupmáttarrýrnunar og lækkunar á húsnæðisverði en þessir þættir valda því að fólk vill frekar vera á leigumarkaði en að kaupa sér eigin húsnæði. Framboðshliðin á leigumarkaði hefur einnig breyst mikið. Fjöldi þeirra íbúða sem upphaflega voru byggðar til sölu rötuðu inn á leigumarkaðinn samhliða því sem erlendir verkamenn sem voru á leigumarkaði hafa yfirgefið landið. Leiguverð lækkaði mikið í kjölfar bankahrunsins en að sögn forsvarsmanna leigumiðlana hefur verðið hækkað á nýjan leik undanfarna mánuði þó að það hafi enn ekki náð sömu hæðum og fyrir bankahrunið.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira