Spákaupmenn veðja gegn evrunni 3. maí 2010 09:02
Gjaldeyrismarkaðurinn reiknar með að gengi evrunnar muni falla ennfrekar en orðið er. Vogunarsjóðir og spákaupmenn taka nú stöðu gegn evrunni á þessum markaði í töluverðum mæli.Samkvæmt frétt um málið á Bloomberg fréttaveitunni sýna framvirkir samningar með gjaldeyri glögglega fram á þessa þróun. Tölur frá Commodity Futures Trading Commission sýna að framvirkum samningum gegn evrunni fjölgaði um 25% í síðustu viku.Það er einkum staðan í Grikklandi og óttinn um að sú staða smitist yfir í önnur evrulönd sem ýtir undir þessa þróun. Svo virðist sem björgunarpakki ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til Grikklands upp á um 110 milljarða evra hafi ekki dregið úr stöðutöku gegn evrunni.Fyrrgreind fjölgun á framvirkum evrusamningum kemur ofan á gríðarlega stöðutöku gegn evrunni í evru/dollar krossum frá áramótum. Frá þeim tíma hefur evran fallið um 7,7% gagnvart dollaranum.
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira