Greining: Reiknar með óbreyttum stýrivöxtum vegna Icesave 11. janúar 2010 10:42 „
Þó svo að forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds finnist nú í þróun verðbólgu og gengi krónunnar frá síðasta vaxtaákvörðunarfundi peningastefnunefndar Seðlabankans þá teljum við að sú óvissa sem skapast hefur í kjölfar ákvörðunar forseta um að vísa Icesave-lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu valdi því að peningastefnunefnd bankans ákveði að halda vöxtum bankans óbreyttum nú."Þetta segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka um fyrirhugaða vaxtaákvörðun peningastefnunefndar. „Nefndin mun þá enn fremur líklega bíða áttekta með frekari vaxtalækkun þar til línur skýrast í því máli. Ákvörðun forseta er því að halda óverðtryggðum vöxtum háum lengur í landinu en ella hefði verði.," segir ennfremur í Morgunkorninu.Næsta vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans verður kynnt miðvikudaginn 27, janúar næstkomandi. Samhliða mun bankinn gefa út fyrsta hefti Peningamála á árinu 2010. Á fundi sínum í 9. desember síðastliðinn tók nefndin þá ákvörðun að lækka vexti á viðskiptareikningum innlánsstofnana um 0,5 prósentur í 8,5% og vexti á lánum gegn veði til sjö daga um 1 prósentu í 10%.Í Morgunkorninu segir að í yfirlýsingu peningastefnunefndarinnar vegna ákvörðunarinnar kemur fram að haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist, og verðbólga hjaðnar eins og spáð er, ættu forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds að vera áfram til staðar.Frá síðustu vaxtaákvörðun nefndarinnar hefur gengi krónunnar aðeins styrkst og verðbólgan hjaðnað. Stóð evran í tæplega 183 krónum við síðustu vaxtaákvörðun en er nú tæplega 180 krónur. Verðbólgan var þá 8,6% en er nú 7,5% og var sú lækkun í samræmi við spár. Fyrir vaxtaákvörðunina verður hins vegar birt önnur mæling Vísitölu neysluverðs og væntum við þess að verðbólgan aukist nokkuð en verði engu að síður minni en hún var við síðustu vaxtaákvörðun.„Megnið af þeirri aukningu má rekja til hækkunar á óbeinum sköttum sem peningastefnunefndin mun líta framhjá við ákvörðun sína. Vaxandi framleiðsluslaki er í innlendum þjóðarbúskap, samdráttur landsframleiðslu umtalsverður og atvinnuleysi að aukast enn. Það virðist því vera að þau tvö skilyrði sem peningastefnunefndin setur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds hafi skapast frá síðustu vaxtaákvörðun nefndarinnar.En að fleiru er að hyggja. Sú ákvörðun forseta að vísa Icesave-lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu hefur aukið áhættuálag á íslenskar fjáreignir. Hefur þetta áhættuálag eins og það er mælt með skuldatryggingarálaginu hækkað allnokkuð eftir ákvörðunina og frá síðustu vaxtaákvörðun Seðlabankans. Einnig hefur lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins verið lækkuð í kjölfar ákvörðunar forsetans.Þá hefur ákvörðunin skapað óvissu um framvindu efnahagsáætlunar Íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og mun væntanlega fresta lánum frá AGS og Norðurlöndunum, en þau voru ætluð til að byggja upp gjaldeyrisforða Seðlabankans.Ef lögin verða samþykkt reiknum við með því að veðlánsvextir bankans til sjö daga verði komnir í 7% í lok árs og innlánsvextir í 6,0%. Ef sæmileg sátt verður fljótlega komin um nýja samningalotu og meðfylgjandi meðferð Alþingis gæti vaxtalækkunarferlið orðið svipað. Byggjum við spá okkar á að annað hvort verði en í spánni er mikil óvissa.Synjun laganna og sú töf sem af því hlýst á framgangi áætlunar AGS og stjórnvalda, útgreiðslu lána í því sambandi, afléttingu gjaldeyrishafta og innflæði fjármagns vegna stórra fjárfestinga gæti hins vegar leitt til þess að vextir yrðu talsvert hærri í lok árs eða a.m.k. 2 prósentum.Ekki er hægt að útiloka að í slíku ferli myndi peningastefnunefndin ákveða að hækka vexti Seðlabankans," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Sjá meira