Félag að baki kísilmálmverksmiðju í miklum fjárhagserfiðleikum 17. febrúar 2010 00:01 Þorlákshöfn.
Undirbúningur að byggingu kísilmálmverksmiðju við Þorlákshöfn virðist skammt á veg kominn, miðað við upplýsingar á vef kanadíska fyrirtækisins Timminco, eins aðila verkefnisins. Fram kemur í uppgjöri fyrirtækisins fyrir þriðja ársfjórðung 2009 að það eigi í miklum erfiðleikum og framtíð þess sé óviss. Aðstæður á markaði séu óhagstæðar fyrir þær sólarkísilvörur sem fyrirtækið framleiðir. Sölutekjur Timminco námu 19 milljónum dala á fjórðungnum, borið saman við 69 milljónir sama fjórðung 2008. Óvissa um eftirspurn eftir framleiðslunni hafi áhrif á rekstrarhæfni og framtíð fyrirtækisins og getu þess til að halda áfram rekstri. Á heimasíðunni kemur fram að unnið hefur verið að því að breyta ýmsum skuldum Timminco í hlutafé. Hvað varðar kísilmálmverksmiðjuna í Þorlákshöfn kemur fram að fyrir miðjan apríl verði ráðist í undirbúningsvinnu fyrir eina milljón Bandaríkjadala. Sú vinna verði grundvöllur ákvörðunar um hvort ráðist verður í gerð fýsileikakönnunar á rekstri kísilmálmverksmiðju á seinni hluta þessa árs. Áætlaður kostnaður við undirbúninginn er ein milljón Bandaríkjadala. Strokkur ehf., íslenskur samstarfsaðili Timminco, sem hafði frumkvæði að byggingu álþynnuverksmiðjunnar við Eyjafjörð, greiðir þann kostnað en fær í staðinn skuldabréf í Bandaríkjadölum, sem ber 12% vexti og er á gjalddaga 1. maí næstkomandi. Útgefandi skuldabréfsins er Thorsil ehf. Það fyrirtæki er í eigu Strokks og Timminco og er viðsemjandi Orkuveitu Reykjavíkur í rammasamningi frá í fyrradag um kaup á 85 MW af orku frá væntanlegri Hverahlíðarvirkjun. - pg
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira