Skeljungi og Atlantsolíu veitt undanþága til samstarfs 17. febrúar 2010 10:37 mynd/gva Mynd/Vísir.
Samkeppniseftirlitið hefur veitt Atlantsolíu ehf. og Skeljungi hf. undanþágu til samstarfs um flutning og dreifingu á olíu milli Reykjavíkur og Akureyrar. Er undanþágan tímabundin og gildir til 14. maí 2010. Á vefsíðu eftirlitsins segir að erindi félaganna laut að ætluðu samstarfi Skeljungs og Atlantsolíu á sviði flutnings og áfyllingar olíu í eigu Atlantsolíu, en félagið hafði óskað eftir því að kaupa tímabundið slíka þjónustu af Skeljungi. Felst í samstarfinu að Skeljungur mun annast flutning eldsneytis í eigu Atlantsolíu með skipi til Akureyrar, landsetja eldsneytið í birgðastöð Skeljungs á Akureyri, flytja eldsneytið þaðan og skila því á útsölustað Atlantsolíu. Vegna þessarar þjónustu og ábyrgðar Skeljungs fengi félagið greidda þóknun samkvæmt óuppsegjanlegum þjónustusamningi á milli félaganna með þriggja mánaða gildistíma. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitisins segir að samstarf Skeljungs og Atlantsolíu fer gegn bannákvæði 10. gr. samkeppnislaga. Með heimild í ákvæði 15. gr. samkeppnislaga veitir Samkeppniseftirlitið nefndu samstarfi tímabundna undanþágu frá ákvæði 10. gr. laganna að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum: Skeljungi hf. er óheimilt að miðla hvers konar viðskiptalegum upplýsingum til Atlantsolíu ehf., t.d. um núverandi eða mögulega keppinauta eða viðskiptavini félagsins. Hið sama gildir um önnur félög undir virkum yfirráðum þess. Atlantsolíu ehf. er óheimilt að miðla hvers konar viðskiptalegum upplýsingum til Skeljungs, t.d. um núverandi eða mögulega keppinauta eða viðskiptavini félagsins. Hið sama gildir um önnur félög undir virkum yfirráðum þess. Meðan undanþágan gildir skulu Skeljungur hf. og Atlantsolía ehf. tilkynna Samkeppniseftirlitinu strax um allar verðbreytingar og aðrar breytingar á skilmálum í flutningum Skeljungs á eldsneyti í eigu Atlantsolíu til Akureyrar. Stjórnarmenn og hlutaðeigandi starfsmenn Skeljungs hf. og Atlantsolíu ehf. skulu undirrita sérstaka yfirlýsingu um að þeir muni fara eftir þessum skilyrðum. Félögin skulu tryggja að hið sama geri stjórnarmenn og hlutaðeigandi starfsmenn í félögum undir virkum yfirráðum þeirra. Afrit af yfirlýsingum þessum skulu afhent Samkeppniseftirlitinu. Undanþága þessi gildir í þrjá mánuði, þ.e. frá birtingu ákvörðunar 12. Febrúar 2010 til 14. maí 2010. Skulu félögin láta samstundis af samvinnunni þegar undanþágan rennur út.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira