Tilkynning um fjárfestingu á Íslandi hækkaði hlutabréfin um 24% 17. febrúar 2010 11:36 Frá undirritun samningsins.
Hlutabréf í kanadíska fyrirtækinu Timminco hækkuðu um 24 prósent eftir að tilkynnt var um áform þess um kísilmálmverksmiðju í Þorlákshöfn. Stefnt er að því að endanlegar ákvarðanir verði teknar fyrir 15. apríl, innan tveggja mánaða. Skrifað var undir samningsramma um verkefnið í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur í fyrradag. Eftir að tíðindin höfðu verið tilkynnt í kauphöllinni í Toronto tóku hlutabréf í Timminco að rjúka upp í miklum viðskiptum og höfðu í lok dags hækkað um 24,3 prósent. Kanadískir fjölmiðlar rekja þessa miklu hækkun til tilkynningar félagsins um að það hyggist fjárfesta á Íslandi. Þar segist félagið stefna að því að framleiða 50 þúsund tonn árlega af kísilmálmi í sveitarfélaginu Ölfusi og gera samning til 20 ára um kaup á 85 megavöttum raforku frá jarðhitavirkjun í Hverahlíð. Stefnt sé að því að framleiðslan hefjist árið 2013. Vitnað er í stjórnarformann og forstjóra Timminco, doktor Heinz Schimmelbusch, sem segir að framleiðslugeta kísilmálmverksmiðju félagsins í Becancour í Kanada sé nú fullnýtt, og þar sem markaður fyrir kísilmálm haldi áfram að vaxa þurfi fyrirtækið að auka framleiðslugetu sína. Það sé bæði til að sinna þörfum hefðbundinna viðskiptavina í efna- og áliðnaði en einnig til að styrkja markaði sína fyrir kísil í sólarsellur. Fram kemur að stefnt sé að því að undirrita bindandi orkusamning eigi síðar en 15. apríl næstkomandi. Þótt Timminco sé skráð í Kanada er það hluti hollensks félags, AMG.
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira