Jóhann: Hver er í sínu horni og allar á einhverju egótrippi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2010 22:15 Joanna Skiba og félagar í Grindavík fundu sig ekki í kvöld.
Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, sagði að liðið sitt hafi ekki unnið saman sem lið í fjórtán stiga tapi á móti Keflavík í Iceland Express deild kvenna í kvöld. Grindavík hafði unnið fjóra síðustu leiki sína í deildinni en náði ekki að framlengja sigurgönguna í kvöld. „Við vorum ekki klárar í það sem við ætluðum okkur. Við vorum búin að tala um það sem við ætluðum að gera en það hefur farið inn um annað og út um hitt. Við vorum ekki klárar í þennan leik," sagði Jóhann. „Ef við erum eins og við vorum í kvöld, þar sem hver er í sínu horni og allar á einhverju egótrippi, þá erum við bara skítlélegt lið. Ef við gerum eins og við höfum verið að gera lungan úr vetrinum þar sem við erum að vinna þetta saman þá erum við með fantagott lið," segir Jóhann. „Það kom smáorka í byrjun seinni hálfleiks og síðan aðeins í restina. Við gátum samt ekki neitt í þessum leik," segir Jóhann en hann ætlar ekki að tapa sér yfir þessum eina leik. „Við ætlum okkur annað sætið því ég held að það sé ekki raunhæft markmið að ná KR-ingunum. Við stöldrum ekki of lengi í þessum leik og nú ætlum við þrusa fram á við. Við pælum aðeins í þessu í kvöld og ræðum þetta á morgun en síðan höldum við bara áfram að vinna í því sem þarf til þess að bæta okkarleik," sagði Jóhann Þór að lokum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Sigurbjörn í sérflokki og tveir þjálfarar toppa formann KSÍ á tekjulistanum Sport „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Íslenski boltinn Þurfa ekki að greiða Eriksen laun Fótbolti Alfreð hrósað fyrir metkaup á einum heitasta leikmanni norsku deildarinnar Fótbolti Sjáðu samskipti dómarans í úrslitaleik HM: Bað Messi um að róa Paredes niður Fótbolti Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Íslenski boltinn Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Enski boltinn „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Enski boltinn Heimsmeistarinn óvænt úr leik í fyrstu umferð Sport Fleiri fréttir Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sjá meira