Viðskipti innlent

Lilja Mósesdóttir vill uppboðsmarkað fyrir gjaldeyri

Hafsteinn Hauksson skrifar
Lilja Mósesdóttir, hagfræðingur og þingmaður Vinstri Grænna, segir afnám gjaldeyrishafta geta reynst skattgreiðendum afar dýrt.
Lilja Mósesdóttir, hagfræðingur og þingmaður Vinstri Grænna, segir afnám gjaldeyrishafta geta reynst skattgreiðendum afar dýrt.
Þingmaður Vinstri grænna leggur til að komið verði á uppboðsmarkaði fyrir gjaldeyri þar sem innlendir eigendur gjaldeyris geta selt hann á yfirverði. Með slíkri aðferð væri hægt að tryggja hægfara afnám gjaldeyrishaftanna á sem ódýrasta hátt fyrir skattgreiðendur.

Lilja Mósesdóttir, hagfræðingur og þingmaður Vinstri Grænna, segir afnám gjaldeyrishafta geta reynst skattgreiðendum afar dýrt. Hún tekur sem dæmi áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, en hún segir vaxtakostnað einan vegna gjaldeyrislána hins opinbera hjá sjóðnum nema um tuttugu milljörðum króna á ári. Þá bendir hún í samtali við fréttastofu á að inngrip Seðlabanka til að hafa áhrif á gengið muni einnig reynast kostnaðarsöm.

Á þingfundi í vikunni lagði hún til að frekar yrði farin svokölluð uppboðsleið við afnám haftanna. Lilja segir uppboðsleiðina þá ódýrustu fyrir skattgreiðendur þar sem hún dregur úr þörfinni á inngripum á gjaldeyrismarkaði.

Uppboðsleiðin felst, að sögn Lilju, í tveim skrefum. Fyrir það fyrsta yrði að lækka vexti verulega. Þannig myndi fjármagn flæða út úr bankakerfinu og í fjárfestingar innanlands, og útstreymisþrýstingur fjármagns minnka.

Í öðru lagi segir hún að setja þyrfti á fót uppboðsmarkað með gjaldeyri, þar sem innlendir eigendur gjaldeyris, einkum útflutningsfyrirtæki, gætu selt hann á yfirverði til aðila sem eru tilbúnir að greiða hærra krónuverð fyrir hann en sem nemur skráðu gengi. Þannig væri aflandsmarkaður með krónur í raun færður inn í landið og tryggt að umframverðið félli í skaut innlendra aðila. Lilja leggur að auki til að ríkið skattleggi þann ágóða, svo úr verði nýr skattstofn fyrir hið opinbera.

Hún segir helsta kostinn við uppboðsleiðina að Seðlabankinn geti í gegnum uppboðsmarkaðinn stýrt framboði króna á gjaldeyrismarkaði. Þannig sé hægt að tappa hægt og bítandi af því fjármagni sem vill út úr landinu og tryggja hægfara afnám gjaldeyrishaftanna.

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, tók undir hugmyndina sem og nauðsyn þess að lækka vexti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×