Greining MP Banka spáir 8,4% verðbólgu 19. apríl 2010 11:42
Enn virðist verðlag vera hækkandi þótt dregið hafi úr mánaðartaktinum. Greining MP Banka gerir því ráð fyrir um 0,4% hækkun verðlags nú í apríl og ef það gengur eftir verður ársverðbólga 8,4% en hún mældist 8,5% í síðasta mánuði. Þetta kemur fram í Markaðsvísi greiningar MP Banka. Þar segir að þrátt fyrir hækkun fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu í mánuðinum má búast við áframhaldandi lækkun fasteignaliðarins í vísitölu neysluverðs en hann ræðst meðal annars af þróun fasteignaverðs og vaxta á íbúðalánum undanfarna mánuði. „Styrking krónunnar í mánuðinum leiðir einnig til lækkunar innkaupsverðs og kann það að leiða til einhverrar lækkunar innfluttra vara. Við gerum ráð fyrir að þessir tveir þættir valdi því að vísitalan hækki 0,1% minna enn annars. Erfitt er að meta hve sterk þessi áhrif eru og hugsanlega vega þau enn þyngra á móti öðrum hækkunum," segir í Markaðsvísinum. „Hækkun sem varð á verðskrám nokkurra bílaumboða í síðasta mánuði hafði ekki áhrif á mælingu verðlags í mars. Ekki er um slíkar hækkanir að ræða nú en hugsanlega koma þær fram með töf þegar viðskipti eiga sér stað. Það gæti valdið meiri hækkun vísitölunnar en hér er spáð. Sveiflur í mánaðarbreytingum vísitölunnar hafa aukist á síðustu tveimur árum á sama tíma og verðbólga hefur aukist. Nú virðist heldur vera að draga úr verðbólgutaktinum, í bili að minnsta kosti, enda hefur dregið verulega úr innlendum eftirspurnarþrýstingi. Að öðru óbreyttu má búast við að verðbólga haldi áfram að hjaðna á næstu mánuðum. Verulegar launahækkanir, frekari veiking krónunnar, og minnkandi samkeppni eru allt áhættuþættir sem gætu unnið gegn þeirri þróun."
Mest lesið Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Sjá meira